|
Höfundur: Valsarar.is
|
|
Sunnudagur, 15. ágúst 2010 21:05 |
|
 Mynd: fotbolti.net
Í öllum barlómnum sem fylgir meistaraflokki karla gleymist það alltof oft hér á Valsarar.is hversu frábært fótboltlalið meistaraflokkur kvenna er. Velgengni síðustu ára hefur síður en svo stigið liðinu til höfuðs heldur hefur stöðugleikinn haldist og uppskeran er tíundi stóri titillinn frá 2001 og sá ellefti er í seilingar fjarlægð. Stelpurnar urðu bikarmeistarar í tólfta sinn í dag eftir mikinn barnings leik gegn liði Stjörnunnar og titill númer 99 kominn í Íslands- og bikarmeistara safnið á Hlíðarenda. Liðið er síðan í dauðafæri í Pefsí deildinni til að bæta við hundraðasta titlinum í hús á hundraðasta starfsári félagsins. Engu keppnisliði innan Vals er betur treystandi til að ná því markmiði.
Viðbót á mánudegi: Þetta var jafnframt fimmtugasti Íslands- eða bikarmeistaratitill sem Valur vinnur í meistaraflokkum í fótbolta. Félagið er það sigursælasta í íslenskri knattspyrnu en næst á eftir kemur KR með 45 dollur og síðan ÍA með 36.
|
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 16. ágúst 2010 10:25 |
|
Útkall: Titill númer 99 er í húfi ! |
|
Höfundur: Valsarar.is
|
|
Föstudagur, 13. ágúst 2010 11:12 |
|

Flaggskip félagsins getur bætt titli númer 99 í Íslands- og bikarmeistarasafn Vals. Mætum og hvetjum þær í átt að þessu takmarki. Við viljum hafa að minnsta kosti 100 titla á afrekaskránni fyrir 11. maí 2011.
|
|
Síðast uppfært: Föstudagur, 13. ágúst 2010 11:16 |
|
Höfundur: Valsarar.is
|
|
Miðvikudagur, 04. ágúst 2010 14:07 |
|
 
Gummi P. verður í banni
Valur mætir meistara kandídötunum í Breiðabliki á Kópavogsvelli í kvöld klukkan 19.15 í leik sem sýnir kannski hvort liðið kemur betur undan verslunarmannahelginni. Í eina tíð var Kópavogsvöllur ekki beint upphálds leikvangur Vals en þó hafa Valsmenn unnið Blika þar síðustu tvö ár og ekki tapað þar í deildinni síðan 2006. Í fyrra var það með var það með klassíkum 0-1 sigri a la Willum Þór og árið áður var það öruggt 0-2. Okkar menn þurfa á stuðningi að halda nú sem aldrei fyrr en liðið hefur ekki náð deildarsigri frá 14. júní. Einnig styttist í árs afmælið síðan Valur hélt hreinu en það gerðist gegn Þrótti þann 17. ágúst 2009. Vonandi verður það partý blásið af í kvöld. Góðar stundir.
|
|
|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Föstudagur, 30. júlí 2010 14:06 |
|

Hinn gríðarlega ósannfærandi Dani er loksins farinn frá Val og þótt fyrr hefði verið. Stjórnendur liðsins naga sig eflaust í handabökin yfir að hafa ekki verið fyrri til og sparkað pilti enda voru næg tilefni til. Þess heldur sýndi Danni König félaginu puttann í síðasta skiptið og stingur af rétt fyrir lok félagaskiptagluggans. Í rauninni er þetta í takt við annað hjá König í sumar og ekki hægt að segja að menn í skrifstofuturni Valsara.is séu blindaðir af sjokki.
Í staðinn er kominn Íri að nafni Diarmuid O'Caroll sem meðal annars hefur verið á mála hjá Celtic í Skotlandi. Þar vann hann sér helst til afreka að sitja fyrir í tómstunda klæðnaði merktum kaþólska félagi Glasgow borgar en lítið fer af afrekum hans á Celtic Park. Á Wikipedia er hægt að lesa nánar um það sem hann hefur helst áorkað; http://en.wikipedia.org/wiki/Diarmuid_O'Carroll .
Á þetta ekki annars að vera einhvers konar uppbyggingar tímabil? Maður spyr sig. Nánar að því síðar.
|
|
Höfundur: Valsarar.is
|
|
Sunnudagur, 25. júlí 2010 18:54 |
|
Ekki fóru Valsmenn neina frægðarför á Hásteinsvöll í dag. Miðað við textalýsingu fjölmiðla virtust Valsmenn vera sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en fóru síðan út af sporinu í seinni hálfleik. Deildarleikur númer 19 í röðinni þar sem Valur nær ekki að halda hreinu svo því sé haldið til haga. Valsarar.is voru ekki á svæðinu svo lesendum verður hlíft við frekari umfjöllun um leikinn og liðið.
|
|
Síðast uppfært: Sunnudagur, 25. júlí 2010 19:07 |
|
Höfundur: Valþór Druzin
|
|
Laugardagur, 26. júní 2010 15:16 |
Kæru stuðningsmenn.
Nú erum við að taka til í fjósinu, og gera úr því netta aðstöðu fyrir stuðningsmenn, vonumst til þess að þetta geti orðið nokkuð gott fyrir Keflavíkurleikinn og svo smám saman betra og betra eftir því sem líður á sumarið. Við myndum samt mjög gjarnan þiggja fleiri hendur í verkið, og biðjum alla sem vettlingi geta valdið að leggja okkur lið í kvöld.Þeir sem vilja taka þátt í að byggja upp varanlega aðstöðu og heimili fyrir stuðingingsmenn mega gjarnan senda tölvuskeyti á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
, og við verðum í bandi.
Tuskur, moppur, hreinsiefni og gúmmíhanskar er enfremur sniðugt að hafa með sér. Ef einhver gæti jafnvel mögulega útvegað kerru eða sendibíl, þá væri það stórkostlegt. Heyrumst!
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 18 |