Nýjustu athugasemdir

Sigur á Selfossi
Fótbolti er skrítinn leikur Tryggvi minn, hver veit nema a...
22:14, 31.08.2010
Ási

Sigur á Selfossi
Tek alfarið undir athugasemd Kristins hér að ofan. Kláru...
19:14, 31.08.2010
OHG

Sigur á Selfossi
Það getur allt gerst í þessum bransa. Fótbolti er skrí...
17:58, 31.08.2010
Tryggvi Jóns

Sigur á Selfossi
Evrópusætið er mjög fjarlægur draumur. Mér reiknast a...
17:20, 31.08.2010
HB

Sigur á Selfossi
Eftir viðburðaríka daga er ekki hægt annað en að hrós...
15:45, 31.08.2010
kristinn

Nafn:

Netfang:

Valur trois points
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Miðvikudagur, 26. maí 2010 14:09

hera

Hera trekkir meira en Grindavík

Loksins hafðist það. Gunnlaugur Jónsson er búinn að draga sinn fyrsta sigur í hús en það mátti varla á tæpara standa. Tvö mörk dugðu gegn stigalausum heimamönnum í Grindavík sem hefðu vel getað stolið stigi á lokamínútnum. Um 700 áhorfendur mættu samkvæmt fjölmiðlum og alveg allt í lagi mæting hjá Völsurum. Illar tungur vildu meina að einhverjir væru að láta forkeppni Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva þvælast fyrir sér. Það verður látið liggja á milli hluta enda aðal málið að ná í sem flest stig í boltanum sem öðrum keppnum.

Það var rjómablíða í Grindavík í gær og stúkan góða sá áhorfendum fyrir skjóli frá hinni þrálátu golu sem einkennir Suðurnesin. Draumaaðstæður fyrir aðkomulið þótt heimamenn séu því eflaust ósammála og sennilega einhverjir gamlir Skagamenn í herbúðum Vals. Gunnlaugur stokkaði liðið upp frá síðasta leik en Martin Pederesen var færður í stöðu Hauks Páls á miðjunni og í stað Martins kom Glenn Ross í bakvörðinn og stóð sig með prýði. Jón Vilhelm var síðan settur í stöðu Ian Jeffs og gekk nokkuð vel.

Valsmenn léku undan vindi í fyrri hálfleik en færðu sér veðrið ekkert sérstaklega í nyt. Talsverð stöðubarátta var milli liðanna og hvorugt þeirra náði neinum sérstökum tökum á boltanum en okkar menn voru kannski skömminni skárri en heimamenn. Valsliðið átti í hefðbundum erfiðleikum við að koma boltanum frá varnarmönnum og upp vallarhelming andstæðinganna en Grindjánar gáfu okkar mönnum lítinn tíma á boltann. Fyrri hálfleikur var þó tíðindalítill fyrir utan þegar Rúnar Már Sigurjónsson, Skagfirðingurinn í liði Vals, átti góðan sprett, lék framhjá varnarmönnum Grindavíkur og átti síðan skot sem hristi netmöskvana. Valsarar í stúkunni voru ekki alveg vissir hvort þeir ættu að fagna eður ei en boltinn fór aðeins í hliðarnetið og liðin skildu því jöfn þegar bláisð var til leikhlés.

jon_gulli_habbo

Skagamenn kunna vel við sig hjá Val. Jón Vilhelm nýtti tækifærið í gær

Reynir Leósson fór meiddur út af í hálfleik og Gunnlaugur skipti inn á hinum aldna leiðtoga Sigurbirni Hreiðarssyni og færði Martin Pedersen í miðvarðarstöðuna. Bjössi virkar ferskur í ár og kom með nýja vinkla inn í leik liðsins. Valsmenn héldu áfram að vera með undirtökin en án þess að stjórna lögum og lofum á vellinum. Eftir um 60 mínútna leik gaf Grindavíkurvörnin sig þegar Danni Köning skoraði ódýrt mark af stutt færi eftir sendingu frá Baldri Aðalsteins. Svo virtist sem að varnarmenn heimamanna hafi treyst á að markvörður þeirra myndi afgreiða lausa sendingu Baldurs en þess í stað stóð Köning einn á auðum sjó inn í markteignum. Sennilega mun hann ekki skora auðveldara mark í sumar.

Scott

Scott Ramsey sló á létta strengi 

0-1 fyrir Val og næstu mínútur lofuðu góðu. Valsmenn héldu áfram að sækja og tæpum 10 mínútum eftir fyrsta markið brá Atli Sveinn sér í sóknina þegar Valur átti innkast rétt við hornfánann. Atla var ætlað skalla boltanum aftur fyrir sig eins og sést hefur nokkrum sinnum í sumar en áhorfendur voru mishrifnir af þessari taktík. Aftarlega í stúkunni heyrðist einn efasemdamaður segja: "Af hverju er alltaf verið að senda hann Atla fram í þessum innköstum? Hvenær á þessari sögu að ljúka?" - "Þetta er framhaldssaga! " svaraði Óttar Felix Hauksson að bragði með sinni hvellu og auðþekkjanlegu rödd. Aðrir Valsarar glottu við fót en fáum var þó hlátur í hug nokkrum sekúndum síðar. Grindvíkingar unnu boltann eftir innkastið og geystust fram. Giles Ondo komst inn fyrir Valsvörnina sem einhverja hluta vegna vantaði einn burðarstólpann og lagði boltann snyrtilega framhjá Kjartani. Sannarlega var fussað og sveijað yfir þessari taktík Valsliðsins en menn þurftu þó ekki að svekkja sig of lengi.

Valsarar hófu leik að nýju og eftir smá barning á miðjunni vann Danni Köning boltann og sendi út á hægri kantinn á Sigurbjörn. Bjössi losaði sig við varnarmann Grindavíkur og lék boltanum í átt að endalínu og átti síðan hárfína fyrirgjöf á fjærstöngina. Boltinn sveif yfir vörn og markvörð Grindvíkinga og þar var mættur Akurnesingurinn Jón Vilhelm Ákason og skallaði knöttinn í autt markið. Valur kominn aftur yfir eftir að hafa fengið á sig ódýrt jöfnunarmark og áhorfendur gátu tekið gleði sína á ný.

Um 20 mínútur voru enn eftir af leiknum og Valsarar með ágætis tök á spilinu. Munurinn var þó ekki nema eitt mark og hefur það sjaldan kunnað góðri lukku að stýra að leggjast í vörn of snemma. Þriðja markið lét hins vegar á sér standa og eftir því sem á leið færðist örlítið meiri þungi í sókn Grindavíkur, án þess þó að þeir væru að vaða í færum. Sigurbjörn var mögulega heppinn að fá ekki dæmda á sig vítaspyrnu þegar hann virtist fara aftan í Scott Ramsey en Gunnar Jarl dómari sá ekkert athugavert við atvikið. Þegar skammt var eftir átti skoska tækniundirð skot í innanverða stöngina, frákastið barst síðan út á Ray Jónsson sem náði ekki að leggja boltann nægjanlega vel fyrir sig en Kjartan Sturluson var jafnframt vel staðsettur og lokaði markinu.

Kostic_steini
Þorsteinn Gunnarsson og félagar ráku Luka Kostic eftir úrslit gærkvöldsins 

Eftir þetta var mest allur vindur farinn úr Ramsey og félögum og Valsmenn fögnuðu innilega þegar Gunnar Jarl ágætur dómari leiksins flautaði til leiksloka. Gunnar Jarl hefur átt skjótan frama í dómarafaginu en stöku sinnum var eins og skorti upp á örlítið meiri reynslu hjá honum. Hins vegar var leikurinn þess eðlis að erfitt var að gera skandala á flautunni.  Næsti leikur hjá okkur verður gegn Fylki í sunnudagsþynnku eftir aðalkeppni Eurovision og kosningavöku. Nánar að því síðar.

Digg    Facebook   
 
Grindavík-Valur upphitun
Höfundur: Valsarar.is   
Þriðjudagur, 25. maí 2010 13:08

Digg    Facebook   
 
Ekki lengur í Kansas
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Laugardagur, 22. maí 2010 10:55

dht



Þá er komið að því að ræða þriðja heimaleik þessa tímabils, nánar tiltekið heimaleik gegn Breiðabliki úr Kópavogi sem endaði með sigri gestanna 0-2. Nýja brumið er farið að rjátla af Gunnlaugi eftir þrjá heimaleiki án sigurs og ljóst að fríspilin sem nýjir þjálfarar fá jafnan, klárast hratt með sama áframhaldi.  

Valsarar hófu leikinn með ágætu móti. Menn mættu fastir fyrir og greinilega ákveðnir í að setja mark helst snemma. Nokkur góð færi litu dagsins ljós en engin nægjanlega góð til að koma Ingvari Kale úr jafnvægi í Blika markinu. Kaflaskipti urðu þó eftir tæpan 20 mínútna leik en þá kenndi Haukur Páll sér meins og ljóst var á sjúkraþjálfaranum að hann þyrfti að fara af velli. Blóðtaka fyrir Valsliðið enda hafði Haukur verið manna duglegastur við að brjóta niður sóknartilburði Breiðabliks.

Gunnlaugur ákvað að fá Sigubjörn Hreiðarsson til að fylla skarð Hauks. Svo virtist vera sem að Sigurbjörn hefði ekki verið fullklæddur í keppnisgallann þegar kallið kom, í það minnsta skokkaði hann inn í leikmannagönginn áður en hann gerði sig tilbúinn að koma inn á. Sennilega hafa liðið um 3-4 mínútur milli þess að Haukur fór út af þar til Bjössa var klár í skiptinguna. Þennan óvænta liðsmun nýtti Breiðablik sér og læddi inn marki, þvert á gang leiksins. Reynir Leósson gerði atlögu að Alfreði Finnbogasyni sem lék fram hjá Skagamanninum, sendi boltann því næst framhjá Atla Sveini á samherja sinn og eftirleikurinn var auðveldur gegn Kjartani í markinu. Svekkjandi fyrir Valsmenn sem höfðu ráðið lögum og lofum á vellinum fram að þessu. Sigurbjörn kom loks inn á og það verður ekki tekið af honum að hann stóð fyrir sínu það sem eftir lifði leiks. Gunnlaugur verður aftur á móti að eiga við sig hvort hann hefði ekki heldur átt að setja strax inn á leikmann sem var klár í slaginn.

Valsmenn lögðu ekki árar í bát í stöðunni 1-0 og áttu sína möguleika. Blikar voru þó nær að komast yfir og áttu meðal annars skot í slánna skömmu eftir fyrra mark sitt. Valur slapp með skrekkinn og eins marks munur þegar Jóhannes Valgeirsson afburðar góður dómari leiksins flautaði til hlés.

Síðari hálfleikur bauð upp á meira af því sama en sóknarleikur okkar manna komst þó ekki mikið áfram og það var helst að menn treystu á að markvörður Blikanna gerði sig sekan um einhverja skógarferðina. Oft mátti litlu muna og fékk Arnar Sveinn Geirsson upplagðan möguleika eftir fyrirgjöf sem Ingvar réð ekki við, en skóflaði boltanum yfir af stuttu færi.  Að öðru leyti komust Valsmenn lítt áleiðis gegn þéttum varnarleik gestanna sem virðast til alls líklegir í sumar. Stuttu eftir færi Arnars Sveins gerði Alfreð Finnbogason út um leikinn með laglegu marki. Ingvar Kale greip eina af endalaust mörgum döprum fyrirgjöfum/hornspyrnum Vals og virtist vera kominn langleiðina út fyrir eigin vítateig þegar hann kom boltanum út á kant. Liðsfélagar hans brunuðu fram og ljóst að Valsvörnin var ekki að fara vinna Íslandsmótið í sprettgöngu á leið sinni til baka. Samspil gestanna gekk fullkomnlega upp, hælspyrnur og konfekt áður en Alfreð rak endahnútinn með hnitmiðuðu skoti sem Kjartan átti enga möguleika að verja. Staðan 0-2 og keppni gott sem lokið á Vodafonevellinum þrátt fyrir að 30 mínútur væru enn eftir.

Kópavogsdrengjum líkaði lífið vel að vera komnir yfir og leyfðu Valsmönnum að liggja talsvert á boltanum. Lítil ógn var að hálfu Valsliðsins sem þurfti nauðsynlega á marki að halda til að geta komist inn í leikinn að nýju. Það gekk hins vegar ekki og síðustu 10 mínúturnar voru spilaðar til þess eins að uppfylla 90 mínútna regluna.

Í síðasta pistli var talað um að heilt yfir liti vörnin nokkuð vel út en því miður virðist sem aðeins hafi verið málað yfir sprungurnar frá því í fyrra. Báðir miðverðir liðsins misstu af boltanum í fyrra marki Blika og í því síðara kom í ljós veikleikinn við að glíma við hraðar sóknir. Varnarlínunni til miska má kannski segja að í fyrra markinu hafi vantað djúpan miðjumann fyrir framan hana. Seinna markið afhjúpaði þekktan vandræðagang en þó má ekki taka það af Blikum að það var sérlega vel að því staðið allt frá markverði til markaskorara og allra hinna sem komu að.

Hveitibrauðsdagar Gunnlaugs Jónssonar í starfi eru brátt taldir eftir þessa rýru byrjun. Líklega hefur hann viljað verja þeim á annan hátt en það er ekki á allt kosið í þessum efnum.  Tvö stig af níu mögulegum hljómar að vísu mun verr en það er í raun og veru. Valur hefur jú aðeins tapað einum leik af þremur en fyrir fram vorum við taldir vera með mun lakara lið en FH og Breiðablik. Jafnteflinu gegn ÍBV var erfitt að kyngja aðallega vegna liðsmunarins í 80 mínútur, að öðru leyti áttum við ekkert meira skilið úr þeirri viðureign.

Gunnlaugur tekur við sum part erfiðu búi á Hlíðarenda sem þó hefur sín fríðindi til leikmannakaupa umfram flest önnur lið. Á síðasta ári virkaði meistaraflokkur Vals vera einn leiðinlegasti vinnustaður landsins og ekki vannst nema einn leikur í seinni umferð deildarinnar. Síðast náði liðið í þrjú stig gegn Þrótti á Valbjarnarvelli 14. ágúst og síðasti heimasigur kom gegn ÍBV 22. júní. Þar fyrir utan var Valsliðið rassskellt af hverjum andstæðingnum á fætur öðrum. Talsvert léttara virðist yfir flestum leikmönnum í byrjun þessa tímabils en ekki er laust við að enn gæti eftirkasta meðal áhorfenda frá því á síðasta leikári og oft stutt í pirringinn. Þótt vissulega séu ekki gerðar kröfur um toppbaráttu í ár þurfa sigurleikirnir að koma fljótlega áður en þessi pirringur verður að megnri óánægju.

Næst er það Grindavík suður með sjó en lærisveinar Luka Kostic hafa átt afleita byrjun eins og í fyrra. Þá þeir náðu einmitt í sitt fyrsta stig gegn Val í 4. umferð eftir að hafa tapað fyrstu þremur leikjum sínum líkt og nú. Væntingarnar verða hófstilltar en nánar að þeim leik síðar.

Digg    Facebook   
 
Blikar ekki á heimasigri
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Föstudagur, 21. maí 2010 01:42

clock


Liði Vals mistókst í kvöld að vinna deildarleik á heimavelli í 11. skipti í röð. Síðasti heimasigur í deild vannst 22. júní gegn ÍBV á síðasta leiktímabili. Að vísu unnum við Álftanes í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar en annars hefur þetta verið þunnur þrettándi á Vodafonevellinum. Nánar um Blika leikinn í kringum föstudags eftirmiðdag en þangað til er orðið laust. 

Digg    Facebook   
 
Skrifað í skýin
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Miðvikudagur, 19. maí 2010 14:30

Eyjafjallajkull_gos_1



Ekki fer þessi leikur við ÍBV í sögubækurnar fyrir aðrar sakir en þær að eldgosið í Eyjafjallajökli var þess valdandi að hann fór fram á Hlíðarenda en ekki Hásteinsvelli. Fyrri hálfleikur var samt með þokkalegasta sniði. Rautt spjald, vítaspyrna í súgnn, tvö mörk og Eyjamenn náðu að jafna manni færri. Það var engu líkara en að Valsmönnum væri ekki ætlað að sigra

Eftir að einn eyjapeyjinn hafði gert sig sekan um að verja boltann með hendi á marklínu var ekki um annað að ræða fyrir Magnús Þórisson en að dæma víti og gefa rautt spjald. Heimir Hallgrímsson þjálfari ÍBV kvartaði yfir þessu en hann veður reyk með þessum ummælum. Ef menn eiga að fá að græða á brotum þá er alveg eins hægt notast við reglubók Alþjóða handknattleikssambandsins. Haukur Páll steig á punktinn og svo virtist sem Danni Köning væri ekki alveg sáttur en Daninn hafði "fiskað" vítið. Albert Sævarsson sá við miðjubuffinu og varði boltann af öryggi. Valsmenn lögðust þó ekki í kör og pressuðu stíft á Eyjamenn sem voru enn að stokka upp lið sitt eftir brottreksturinn. Segja má að Haukur hafi bætt upp fyrir vítaspyrnuna skömmu síðar þegar hann komst á auðan sjó inn í vítateignum og renndi honum á Atla Svein sem skoraði af stuttu færi. 1-0 og stúkugestir farnir að gera ráð fyrir að Valur myndi reykspóla yfir Eyjamenn.

Vestmanneyjingar með Tryggva Guðmundsson góðvin Valsara í fararbroddi voru þó ekki á því að láta skilja sig eftir í rykmökki. Valsvörnin gerði sig seka um hroðaleg mistök þegar sending frá Martin Pedersen fór á milli Reynis og Kjartans og beint í fætur Úkraínumanns í liði Eyjamanna. Sá þakkaði pent fyrir sig og var í litlum vandræðum með að skora. Vandræðalegt mark að hálfu Vals og eftir þetta var sem ákveðinn neista vantaði til að kveikja í liðinu á nýjan leik. Líklega hafa flestir gert ráð fyrir að vörn gestanna myndi gefa sig á endanum en Eyjamenn héldu út og fóru með stig af hólmi þrátt fyrir að vera með laskað lið. Vel gert hjá þeim og ljóst að það er nokkrir leikmenn þar innanborðs sem geta gert öðrum liðum lífið leitt í sumar. 

Það sem sat í mönnum að leik loknum var helst það að hafa ekki nýtt liðsmuninn gegn liði sem er ekki hærra skrifað en ÍBV. Á móti kemur að Valur var alls ekki með neina yfirburði á vellinum þrátt fyrir liðsmuninn, sem var nóg til að æra óstöðuga stuðningsmenn liðsins. Sama má eflaust segja um leikmenn og þjálfara en flest viðtöl eftir leikinn voru á sama veg. Hvað varðar öftustu línu Valslliðsins virðist hún líta vel út að mestu og heilt yfir eru menn vel skipulagðir. Mörkin sem við höfum fengið á okkur eru öll þess eðlis að auðvelt á að vera koma í veg fyrir þau og vonandi skrifast þau á einhvern vorbrag Þegar kemur að því að halda uppi stífum sóknarleik þarf liðið að vera þolinmóðara og eins vantaði upp á meiri ógn frá hornspyrnum liðsins. Valur fékk um 15 slíkar á meðan Eyjamenn fengu eina og þær má útfæra mun markvissar en sást á mánudaginn.

Reynir Leósson þurfti að yfirgefa leikvöllin en hann virtis kenna sér meins í nára. Inn á kom Glen Ross og Pedersen var færður í miðvörðinn. Það reyndi svo sem lítið á þessar hrókeringar enda lágu Vestmanneyjingar meira og minna í vörn fyrir utan einstaka skyndisóknir en ekki er ljóst hvort Reynir snúi aftur í tíma fyrir Blika leikinn.

Þrátt fyrir að ekki hafi tekist að ryðja niður tjaldborg Eyjamanna í vítateig sínum var ýmislegt jákvætt sem má taka frá þessum leik. Miðjuspilið er allt annað frá því á síðasta tímabili og samstarfið hjá Hauki Pál, Ian Jeffs og Rúnari lofar góðu. Baldur Aðalsteins hefur spilað framarlega á vinstrikanti en það er ákveðinn söknuður af fyrirgjöfunum hans frá hægri enda fáir sem krossa betur en Húsvíkingurinn knái. Af bekknum komu síðan  Skagamennirnir Jón Vilhelm og Hafþór Ægir en hvorugur náði að valda neinum usla hjá vörn gestanna sem voru þéttir og skipulagðir. Miðað fyrstu tvo leikina má segja að Valsliðið virðist vera ágætt í að brjóta niður sóknarleik andstæðinganna en gengur verr að liggja á boltanum í lengri tíma.

Blikarnir úr Smáranum mæta á Hlíðarenda á fimmtudagskvöld. Byrjunin hjá þeim hefur ekki verið samkvæmt þessum dæmigerðu sex stiga væntingum sem öll lið gera til fyrstu tveggja umferðanna. Eftir bikarsigur í fyrra eru margir á því að tími Breiðabliks sé að renna upp en líklega vantar þó nokkur púsl upp á verðuga meistarakandídata. 

Ágætis mæting var á Hlíðarenda á mánudaginn miðað við skamman fyrirvara eða um 1000 manns en fáir fylgdu gestaliðinu af augljósum ástæðum. Vonandi fjölmenna áhorfendur beggja liða á fimmtudaginn en ætla má að töpuð stig geti þýtt ávísun á miðjumoð. Nánar að því síðar.

Digg    Facebook   
 
Ösku fúllt
Höfundur: Valsarar.is   
Mánudagur, 17. maí 2010 22:13
Jafntefli 1-1 gegn ÍBV í leik þar sem okkar menn voru manni fleiri bróðurpart leiksins var vægast sagt ergileg niðurstaða. Umfjöllun um leikinn dettur inn á morgun en þangað til er orðið laust fyrir aðra besserwissera.

Digg    Facebook   
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 6 af 22