Nýjustu athugasemdir

Sigur á Selfossi
Fótbolti er skrítinn leikur Tryggvi minn, hver veit nema a...
22:14, 31.08.2010
Ási

Sigur á Selfossi
Tek alfarið undir athugasemd Kristins hér að ofan. Kláru...
19:14, 31.08.2010
OHG

Sigur á Selfossi
Það getur allt gerst í þessum bransa. Fótbolti er skrí...
17:58, 31.08.2010
Tryggvi Jóns

Sigur á Selfossi
Evrópusætið er mjög fjarlægur draumur. Mér reiknast a...
17:20, 31.08.2010
HB

Sigur á Selfossi
Eftir viðburðaríka daga er ekki hægt annað en að hrós...
15:45, 31.08.2010
kristinn

Nafn:

Netfang:

Sigur varnarinnar
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Mánudagur, 15. júní 2009 22:35
Lélegur sóknarleikur, léleg miðja, lélegt samspil, léleg vinnsla en góður sigur. Valsmenn voru ekki að heilla stúkuna í kvöld en gáfu á móti fá færi á sér. 0-1 sigur og þrjú stig á einum erfiðasta útivelli Vals eru vel þegin sama þótt að fagurfræðin hafi ekki verið með í för. Nánari umfjöllun um leikinn dettur inn um hádegisbilið en þangað til er orðið laust.

Ps. Valsarar mættu bara nokkuð vel í stúkuna þó svo að valsarar.is hafi gert ráð fyrir öðru.  Gunnar Birgisson var þó löglega afsakaður í kvöld á fundi fulltrúaráðs Sjálfstæðismanna í Kópavogi..

Digg    Facebook   
 
Breiðablik næst
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Sunnudagur, 14. júní 2009 21:51
Image
Mætir þessi?

Næsti leikur meistaraflokks karla er á martraðarvelli Vals -Kópavogsvelli. Blikar taka á móti okkur en þess ber að geta að Valsmenn náðu langþráðum deildar sigri gegn Breiðabliki á síðasta tímabili. Aftur á móti töpuðum við fyrir HK og einnig slógu Blikar okkur úr bikarnum á vellinum alræmda. Leikar hefjast klukkan 20.00 og hinir vafasömu sófa Valsarar vita líklegast að leikurinn er í beinni á Stöð 2 Sport. Menn verða því löglega afsakaðir með að mæta ekki í Kópavoginn, þótt það sé auðvitað með öllu siðlaust og viðkomandi til háborinnar skammar. En annað eins gengur nú á í Vogi kópsins um þessar mundir þannig að léleg mæting að hálfu Valsara mun fljótt falla í gleymsku. Vonandi.

Digg    Facebook   
 
Álftanes í bikarnum
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Fimmtudagur, 04. júní 2009 13:58
Image
Valur dróst gegn Álftanesi í 32-liða úrslitum bikarkeppninnar í ár. Þetta ætti að geta orðið nokkuð þægilegur leikur fyrir okkar menn en Álftanes afrekaði að slá út 1. deildar lið ÍR í síðustu umferð. Knattspyrnufélagið Valur hefur ekki unnið bikarkeppnina síðan 2005 og er löngu kominn tími á 10 bikarinn á afrekaskrá meistaraflokks karla.

Digg    Facebook   
 
Fyrsta Lúkasarmál sumarsins
Fimmtudagur, 04. júní 2009 12:27
Image
Hinn árvissi viðburður knattspyrnusumarsins er þegar einhver stuðningsmannahópur fær skömm í hattinn. Nú hefur þessi viðburður átt sér stað. Á internetinu logar allt í fólki sem móðgast sárlega fyrir hönd Hauks Inga og Ragnhildar Steinunnar. Allt vegna þess að einhverjar Garðabæjargelgjur voru að reyna að vera fyndnar á fótboltaleik. Eftir að hafa heyrt textann er ég ekki alveg að skilja hvar stóri skandallinn liggur. Kíkjum á þetta:

Digg    Facebook   
Nánar...
 
Þróttarar lagðir
Þriðjudagur, 02. júní 2009 10:43
Valsarar voru mættir á Hlíðarenda í kvöld til að sjá sína menn taka á móti Þrótturum.  Fyrir leikinn voru Valsmenn með sjö stig en Þróttarar með tvö.  Leikurinn var síðasti leikurinn í hraðmótinu, eins og fyrstu umferðir Íslandsmótsins eru oft kallaðar, áður en landsleikjahléið skellur á og mikilvægt að fara inní það með sigri.

Digg    Facebook   
Nánar...
 
Þrjú stig
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Þriðjudagur, 02. júní 2009 00:08
Valur vann mikilvægan 2-1 sigur gegn 10 leikmönnum Þróttar í kvöld. Segja má að Valsmenn rétt hangi inni í kapphlaupinu við FH sem byrja mótið með stæl enn eitt árið. Umfjöllun um leikinn kemur um hádegisbilið en þangað til er lesendum frjálst að skrá inn athugasemdir.

Digg    Facebook   
 
<< Fyrsta < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Næsta > Síðasta >>

Síða 20 af 22