Nýjustu athugasemdir

Sigur á Selfossi
Fótbolti er skrítinn leikur Tryggvi minn, hver veit nema a...
22:14, 31.08.2010
Ási

Sigur á Selfossi
Tek alfarið undir athugasemd Kristins hér að ofan. Kláru...
19:14, 31.08.2010
OHG

Sigur á Selfossi
Það getur allt gerst í þessum bransa. Fótbolti er skrí...
17:58, 31.08.2010
Tryggvi Jóns

Sigur á Selfossi
Evrópusætið er mjög fjarlægur draumur. Mér reiknast a...
17:20, 31.08.2010
HB

Sigur á Selfossi
Eftir viðburðaríka daga er ekki hægt annað en að hrós...
15:45, 31.08.2010
kristinn

Nafn:

Netfang:

Sigur á Selfossi
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Mánudagur, 30. ágúst 2010 23:43

gulli_selfoss

Stjórnarbani? Gunnlaugur gleðst hér með stjórn Selfoss

Valsmenn gerðu góða ferð á Selfoss á mánudagskvöldið eftir mikla dramatík í kjölfar háðulegrar útreiðar gegn KR fyrir viku síðan. Mörk frá Jóni Vilhelm, Arnari Sveini og Guðmundi Steini nægðu til að halda Selfyssingum í hæfilegri fjarlægð. Valsliðið fór upp fyrir Keflavík og Stjörnuna með þessum sigri og er stigi á eftir Fram.

Eftir það sem á undan er gengið var ánægjulegt að sjá liðið taka þrjú stig á útivelli en um leið má segja að Selfoss var ekki beint martraðar andstæðingur í þessari stöðu. Valsliðið stjórnaði leiknum að mestu og eftir að hafa náð 0-2 forystu var fátt sem benti til að heimamenn gætu komist inn í leikinn að nýju.

Gjafavörudeildin, eins og varnarlína Vals hefur gjarnan verið nefnd hér í sumar, sá þó um sína og Greg Ross rétti Sunnlendingum líflínu þegar hann líkti eftir símastaur og varði bakfallsspyrnu Sævar Þórs Gíslasonar. Vítaspyrna var ekki umflúin og má jafnvel velta fyrir sér hvort Gunnar Jarl hefði getað rekið Ross út af. Hinn ungi ofurdómari var þó skynsamur og lét gult spjald nægja. Valsmaðurinn Viktor Unnar steig á punktinn og skoraði af öryggi.

 

gunnar_jarl
Gunnar Jarl alltaf hress

Valsarar í stúkunni fóru að búa sig undir enn einn rússíbanann en Guðmundur Steinn gerði nánast út um leikinn skömmu síðar með þriðja marki Vals eftir laglega gegnum sendingu frá Baldri Aðalsteins. Selfyssingar voru ekki alveg af baki dottnir og minnkaði Sævar Þór muninn á ný um 10 mínútum fyrir leikslok en lengra komust lærisveinar Frelsarans ekki og Valsmenn lokuðu leiknum af öryggi.

Valsliðið leit þokkalega vel út í leiknum en sama skapi verður að athuga að andstæðingurinn var ekki beint sterkasta knattspyrnulið deildarinnar þótt leikmenn þess hafi látið finna vel fyrir sér. Sóknin gekk ágætlega á köflum en eftir að Arnar Sveinn varð fyrir hnjaski í lok fyrri hálfleiks skorti möguleikan á að sækja hratt upp völlinn. Haukur Páll var í fantaformi og eins var Martin Petersen ansi drjúgur en virtist þó spila Selfyssinga réttstæða í öðru markinu þeirra.

Heimavöllur Selfyssinga gæti orðið skemmtileg gryfja þegar fram líða stundir en hálfkláruð stúkan hafði af mér Fanta Lemon flösku. Það verður geymt en ekki gleymt.

Valur er kominn í sæti um miðja deild en Evrópusæti þarf ekki að vera það óraunhæft ef úrslit í innbyrðis viðureignum toppliðanna falla með okkur. Svo þarf Valur víst líka að taka ágætis sigurleikja hrinu í lok móts til að sá fjarlægi draumur rætist.

Landsleikjahlé er framundan og næst leikur Vals verður gegn Stjörnunni á Hlíðarenda þann 12. september. Nánar að því síðar.

 

 

Digg    Facebook   
 
Slátrun
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Þriðjudagur, 24. ágúst 2010 12:30

 

rambo08

Enn einn skellurinn leit dagsins ljós hjá Val á Vodafonevellinum þegar KR-ingar komu í heimsókn á sinn eftirlætis útivöll. Aðeins Haukar hafa náð að taka stig af KR á nýja vellinum en Valur hefur tapað öllum sínum fjórum leikjum gegn KR og það sannfærandi í hvert einasta skipti. Engin breyting varð á því í gær og 1-4 tap hefði hæglega getað orðið mun stærra ef KR-ingar hefðu ekki slakað á klónni eftir að hafa náð öruggri forystu. 

Eftir bærilegan fyrri hálfleik þar sem Valsmenn fengu þó nokkur færi til komast yfir kom að slæma kaflanum í seinni hálfleik hjá liði Gunnlaugs Jónssonar og þá var ekki að sökum að spyrja. Leikmenn Vals litu út eins og fallbyssufóðrið í nýjustu Stallone myndinni og áttu ekkert í Vesturbæinga.

Í fyrri leik liðanna tókst Valsmönnum að stöðva allt flæði í leik KR-inga en í gær var málum öfugt farið. Vængmenn KR sprengdu upp Valsvörnina hvað eftir annað og ljóst er að Rúnar Már Sigurjónsson verður líklega aldrei góður bakvörður þótt hann sé efni í prýðilegan miðjumann. Eins verður aðallega að setja spurningamerki við liðsval þjálfarans sem ákvað að nota Martin Petersen sem miðvörð fremur en bakvörð gegn liði sem er með sprækustu kantmenn deildarinnar.

cardinal-spanked

Hinu megin átti Stefán í miklum vandræðum með Óskar Örn og hefði Arnar Sveinn mátt vera vakandi fyrir að hjálpa til í varnarvinnunni. Arnar sýnir oft lipra spretti en er enn frekar óheflaður og þarf greinilega meiri tíma til að verða að þeim öfluga leikmanni sem efni standa til. Ekki er úr vegi að spyrja sig hvort ekki megi nota Arnar Svein í framlínunni fremur en formlausan Íra og hafa Baldur Aðalsteinsson í sinni náttúrulegu stöðu á hægri kantinum.

Lítið hefur komið út úr Húsvíkingnum á vinstri helmingi vallarins en kannski á að láta hann spila þar þangað til að það virkar. Ljóst er að sóknarleikurinn er engu minni höfuðverkur en varnarleikurinn en einnig er það einkennandi fyrir Valsliðið hvað menn missa trú á verkefninu við að lenda marki undir. Kannski ekki að furða þegar sóknin er jafn bitlítil en Valsliðið þarf yfirleitt að hafa mikið fyrir hverju marki sem það skorar. 

Það er jafn leiðinlegt að tapa fyrir KR og það er gaman að vinna það en mestu vonbrigðin er þau að hversu lítið erkifjendurnir virtust hafa fyrir sigrinum eftir fyrsta markið. Líkt og í öðrum tapleikjum Vals í sumar var liðið ágætlega inn í leiknum þar til að það lenti undir. Þessi úrslit koma ekki  mikið á óvart miðað við það sem á undan er gengið  á Íslandsmótinu en þegar andstæðingar Vals finna veiku blettina á liðinu þarf ekki að spyrja að leikslokum. Því miður hefur þjálfarinn ekki náð að stoppa í götin enn sem komið er og hreinlega farin að verða spurning hvort honum vinnist tími til þess. 

Næsti leikur Vals fer fram á Selfossi klukkan 18 á mánudegi. Nánar að því síðar.

Digg    Facebook   
 
Hver hefur sinn djöful að draga
Höfundur: Valsarar.is   
Sunnudagur, 22. ágúst 2010 20:04

barcode666

Fyrir áhugafólk um svartagaldur, hvítagaldur eða aðrar samsæriskenningar er rétt að benda á enn ein tengsl KR við djöfulinn umfram þessi allra augljósustu. Strikamerkin sem troðið er á allar vörur nú til dags innihalda þrjár sexur innan um svarthvítar langrendur. Tilviljun? Varla. 

Valur-KR klukkan 6 á mánudagskvöld í sannkölluðum 6 stiga leik fyrir bæði lið.

Digg    Facebook   
 
Langþráður sigur
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Þriðjudagur, 17. ágúst 2010 09:29
gull_haukur
Haukur létti þungu fargi af Gulla

Loksins tóku liðsmenn Vals þrjú stig frá knattspyrnuleik. Ekki nóg með það heldur hélst markið hreint annan leikinn í röð og geta Valsarar.is því hætt að út tuða sig um þann þátt í bili. Allt annar bragur hefur verið yfir vörn liðsins í síðustu tveimur leikjum og þó svo að spilið fram á við sé lítið til að hrópa húrra fyrir þá er auðvitað alltaf mikilvægt að treysta grunninn fyrst. Full oft í sumar hefur liðið verið að byrja leiki ágætlega en síðan fallið allur ketill í eld við að fá á sig mark. 

Leikur Fylkis og Vals einkenndist af mikilli stöðubaráttu og segja má að bæði lið hafi jafnað hvort annað út að því leytinu en fátt var um opin marktækifæri eða góða spilakafla. Báðir þjálfarar liðanna koma úr harðhausa bekknum í hinum fræga knattspyrnuskóla á Skipaskaga og eflaust hafa þeir félagar svipaðar skoðanir á því hvernig eigi að spila fótbolta. 

oli_gulli
Gunnlaugur og Óli Þórðar fagna bikarnum 2003

Segja má að sigurinn hefði getað dottið hvorum  megin en Fylkismenn fengu þó betri færi framan af og var Albert Ingason Valsarasonur einna sprækstur í liði heimamanna. Hjá okkur var það Haukur Páll sem var einn besti maður vallarins og skoraði gamli Þróttarinn eina mark leiksins þegar boltinn datt fyrir hann í miðjum vítateig eftir hornspyrnu. Vel að verki staðið hjá Hauki sem stóð fyrir sínu á miðjunni ásamt þeim Rúnari Má og Jóni Vilhelm. Einnig sýndi Kjartan gamalkunna takta og var öruggur í öllum sínum aðgerðum í markinu. Fátt annað gladdi augað á vellinum fyrir utan baráttuna og vinnusemina sem Valsmenn voru tilbúnir að leggja á sig til að hanga á eins marks forystunni sem kom kannski eitthvað niður á skemmtanagildi leiksins. Að minnsta kosti er það samdóma álit flestra fjölmiðla sem fjalla um leikinn.  

Eftir afleitt gengi síðustu tvo mánuði þar sem liðið hefur hvorki verið þess megnugt að vinna leiki né að spila neitt sérstaklega vel var auðvitað fyrst og fremst mikilvægt að ná að kreista út sigurleik. Þrjú stig gegn Fylki þýða að Valur skilur sig endanlega frá hugsanlegum falldraug og nær að hanga í liðunum um miðja deildina. Næsti leikur er gegn KR klukkan 18.00 á mánudaginn. Vesturbæjar volæðið hefur náð nýjum hæðum eftir bikarúrslitin og spennandi verður að sjá með hvaða hætti liðin nálgast leikinn. Nánar að því síðar.

Digg    Facebook   
 
Annað hundraðið nálgast
Höfundur: Valsarar.is   
Sunnudagur, 15. ágúst 2010 21:05

bikarmeistarar2010
Mynd: fotbolti.net

Í öllum barlómnum sem fylgir meistaraflokki karla gleymist það alltof oft hér á Valsarar.is hversu frábært fótboltlalið meistaraflokkur kvenna er. Velgengni síðustu ára hefur síður en svo stigið liðinu til höfuðs heldur hefur stöðugleikinn haldist og uppskeran er tíundi stóri titillinn frá 2001 og sá ellefti er í seilingar fjarlægð. Stelpurnar urðu bikarmeistarar í tólfta sinn í dag eftir mikinn barnings leik gegn liði Stjörnunnar og titill númer 99 kominn í Íslands- og bikarmeistara safnið á Hlíðarenda. Liðið er síðan í dauðafæri í Pefsí deildinni til að bæta við hundraðasta titlinum í hús á hundraðasta starfsári félagsins. Engu keppnisliði innan Vals er betur treystandi til að ná því markmiði.

Viðbót á mánudegi:
Þetta var jafnframt  fimmtugasti Íslands- eða bikarmeistaratitill sem Valur vinnur í meistaraflokkum í fótbolta. Félagið er það sigursælasta í íslenskri knattspyrnu en næst á eftir kemur KR með 45 dollur og síðan ÍA með 36.

Digg    Facebook   
 
Útkall: Titill númer 99 er í húfi !
Höfundur: Valsarar.is   
Föstudagur, 13. ágúst 2010 11:12

visabikar

Flaggskip félagsins getur bætt titli númer 99 í Íslands- og bikarmeistarasafn Vals. Mætum og hvetjum þær í átt að þessu takmarki. Við viljum hafa að minnsta kosti 100 titla á afrekaskránni fyrir 11. maí 2011.

 

Digg    Facebook   
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 22