Er eitthvað sem þér liggur á hjarta varðandi Knattspyrnufélagið Val sem fær ekki réttan farveg? Brennur þú innan í þér en ert kominn með leið á að hlusta á Eyþór Arnalds og Todmobile?
Valsarar.is leita að beittum pennum til að skrifa um kappleiki, menn, mýs og málefni sem tengjast Hlíðarendastórveldinu.
Áhugasamir hafið samband með því að senda póst á letrix hjá gmail punktur com.
Sælir kæru Valsarar. Það verður hittingur fyrir leikinn á morgunn upp í Valsheimili klukkan 1400. ALLIR VELKOMNIR!!! Endilega komið og gerið ykkur glaðann dag. Stuðningurinn er mikilvægur á morgunn því að það er ekki bara heiður í húfi heldur Evrópusæti líka.
Um kvöldið, 2100, eru svo allir Valsarar velkomnir á efri hæð Kaffibarsins þar sem að við getum fagnað sigri á kr og endað tímabilið. Bjór á Valstilboði á þessum bar sem að við Valsarar viljum eigna okkur og brjáluð stemning. Ekki skemmir fyrir að Valshljómsveitin Retro Stefsson verður með tónleika á KB klukkan 2130-2230.
Mér fannst bara að þessi myndi yrði að birtast hér á þessari síðu. Þetta er náttúrulega fréttaljósmynd ársins, og segir mikið um gæðin í íslenskum fótbolta.
Ég tippa á þessi mæti upp í Lollastúku í hálfleik.