Nýjustu athugasemdir

Sigur á Selfossi
Fótbolti er skrítinn leikur Tryggvi minn, hver veit nema a...
22:14, 31.08.2010
Ási

Sigur á Selfossi
Tek alfarið undir athugasemd Kristins hér að ofan. Kláru...
19:14, 31.08.2010
OHG

Sigur á Selfossi
Það getur allt gerst í þessum bransa. Fótbolti er skrí...
17:58, 31.08.2010
Tryggvi Jóns

Sigur á Selfossi
Evrópusætið er mjög fjarlægur draumur. Mér reiknast a...
17:20, 31.08.2010
HB

Sigur á Selfossi
Eftir viðburðaríka daga er ekki hægt annað en að hrós...
15:45, 31.08.2010
kristinn

Nafn:

Netfang:

Skúbb
Brottför hjá Baldri?
Höfundur: Valsarar.is   
Laugardagur, 28. nóvember 2009 15:28
Brottför hjá Baldri?
Einn helsti lykilleikmaður Vals á síðustu árum, Baldur Ingimar Aðalsteinsson er kominn með lausan samning í enn eitt skiptið. Frá því Baldur gekk til liðs við okkur í 1. deildinni fyrir tímabilið 2004 hefur hann jafnan gert saming til tveggja ára.
Eftir titil tímabilin 2005 (þar sem Baldur skoraði sigurmark bikarkeppninnar) og 2007 (þar sem Baldur skoraði fyrra markið gegn FH í 17. umferð) má segja að Húsvíkingurinn hafi verið í topp samningsaðstöðu. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá. Meiðsli hafa þó plagað kappann allar götur síðan og má telja næsta öruggt að Valur geti ekki boðið honum sambærileg laun nú og á haustdögum 2007.
Baldur er samningsbundinn hjá Val til áramóta en lítið virðist þokast í rétt átt í viðræðum við Val um þessar mundir. Orðið á götunni er að mörg lið horfi hýru auga til Baldurs og eru þá Suðurnesjaliðin helst nefnd í því sambandi. Kvótagreifarnir í Grindavík eru aftur komnir með veskin á loft en sterkari er orðrómurinn um að Willum Þór Þórsson leggi ofurkapp á að fá Baldur til sín til Keflavíkur. Baldur býr og starfar í Reykjavík og því er það helst spurning hvort hann leggi daglegar ferðir um Reykjanesbrautina fyrir sig.
Stjórn Vals gerði vel á sínum tíma í að ná í þennan öfluga leikmann sem spilaði stórt hlutverk hjá sigursælu liði ÍA og ekki síður stærra hlutverk eftir að Valur komst í hóp þeirra bestu á nýjan leik. Eftir misheppnað eyðslufyllerí fyrir þetta tímabil og brotthvarf helstu styrktaraðila félagsins er ljóst að menn þurfa að brýna niðurskurðarhnífinn þennan vetur.
Eins er óljóst hversu mikla áherslu Gunnlaugur Jónsson leggur á að halda Baldri en hann hefur bætt við ungum miðjumönnum í Valsliðið undafarið sem eru augljóslega nokkrum launaflokkum neðar en þeir sem Valur hefur samið við á síðustu árum. Það gæti því verið komið að kveðjustund fyrir Baldur.
Einn helsti lykilleikmaður Vals á síðustu árum, Baldur Ingimar Aðalsteinsson er kominn með lausan samning í þriðja skiptið frá því að hann gekk til liðs við Val árið 2003. Baldur hefur jafnan gert samning til tveggja ára við Val sem kom sér vel fyrir leikmanninn við samnings endurnýjun í síðustu tvö skipti. En skjótt skipast veður í lofti og ljóst að annað umhverfi blasir við í dag.

baldur2
Eltir Baldur Willum til Keflavíkur?

Eftir titil tímabilin 2005 (þar sem Baldur skoraði sigurmark bikarkeppninnar) og 2007 (þar sem Baldur skoraði fyrra markið gegn FH í 17. umferð) má segja að Húsvíkingurinn hafi verið í drauma samningsaðstöðu við Val. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá og ýmis smávægileg meiðsli plagað kappann í nær tvö ár þannig að hann hefur verið inni og út úr liðinu sitt á hvað nær allan þennan tíma. Öruggt er að Valur geti ekki boðið honum sambærileg laun nú og á haustdögum 2007 auk þess er óljóst hvernig Baldur kemur undan þessari strjálu spilamennsku.

Baldur er samningsbundinn hjá Val til áramóta en lítið virðist þokast í rétt átt í viðræðum við Val um þessar mundir samkvæmt heimildum Valsara.is. Orðið á götunni er að mörg lið horfi hýru auga til Baldurs og eru þá Suðurnesjaliðin helst nefnd í því sambandi. Kvótagreifarnir í Grindavík eru aftur komnir með veskin á loft en sterkari er orðrómurinn um að Willum Þór Þórsson leggi ofurkapp á að fá Baldur til sín til Keflavíkur. Baldur býr og starfar í Reykjavík og því er það helst spurning hvort hann leggi daglegar ferðir um Reykjanesbrautina fyrir sig. Síendurtekin meiðsli Baldurs setja eflaust líka strik í reikninginn og dregur eflaust úr áhuga einhverra liða.

Stjórn Vals gerði vel á sínum tíma í að ná í þennan öfluga leikmann sem spilaði stórt hlutverk hjá sigursælu liði ÍA og ekki síður stærra hlutverk með Val eftir að félagið komst í hóp þeirra bestu á nýjan leik. Ef ekki væri fyrir þrálát meiðsli hefði Baldur líklega getað átt prýðilegan feril í Skandinavíu líkt og margir aðrir frambærilegir íslenskir knattspyrnumenn. Þess í stað hafa ÍA og Valur notið hæfileika hans. 

Eftir misheppnað eyðslufyllerí fyrir þetta tímabil og brotthvarf helstu styrktaraðila félagsins er ljóst að menn þurfa að brýna niðurskurðarhnífinn þennan vetur. Eins er óljóst hversu mikla áherslu Gunnlaugur Jónsson leggur á að halda Baldri en hann hefur bætt við ungum miðjumönnum í Valsliðið undafarið sem eru augljóslega nokkrum launaflokkum neðar en þeir sem Valur hefur samið við á síðustu árum. Það gæti því verið komið að kveðjustund hjá Baldri.




*[mynd af fótbolti.net]

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Laugardagur, 28. nóvember 2009 16:52
 
Herra Ísland á heimleið!
Höfundur: Valsarar.is   
Fimmtudagur, 12. nóvember 2009 16:58
Herra Ísland!Orðið á götum Hlíðahverfis, er að þær fabúleringar sem við á völsurum.is vorum með fyrr á árinu varðandi endurkomu Hr. Íslands, séu mögulega að verða að veruleika. 
Garðar Gunnlaugsson ku vera í viðræðum við Val, og fari allt að óskum getur vel farið svo að Garðar spóki sig í Valsbúningi næsta sumar.

Við munum að sjálfsögðu fylgjast með framvindunni, en mundu að þú last þetta fyrst á valsarar.is


Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 12. nóvember 2009 17:18
 
Gróa segir
Höfundur: Valsarar.is   
Fimmtudagur, 01. október 2009 10:54

hlerad

Gróa er á fullu þessa dagana og laumaði eftirfarandi að okkur;

Ólýginn sagði mér, en hafðu mig samt ekki fyrir því blessaður, að Valur á í viðræðum við nokkra leikmenn um þessar mundir. Skagamennirnir Jón Vilhelm Ákason og Hafþór Ægir Vilhjálmsson munu skrifa undir hjá Val á næstu dögum. Jón Vilhelm er að renna út á samning við ÍA og Hafþór sem er samningslaus fær annað tækifæri til að sanna sig hjá Val. Einnig er verið að reyna að fá Alfreð Finnbogason hjá Breiðablik en líklegast mun hann fara erlendis í haust. Verði hann hér heima er Valur vænlegasti kosturinn. Svo er það Viktor Bjarki Arnarson sem ætlar að láta gamlan draum rætast og leika með Val næsta sumar en hann er við það að klára samning sinn hjá Lilleström í Noregi. Fleira var það ekki í bili. 

 

Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 01. október 2009 11:26
 
Matthías snýr aftur!
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Miðvikudagur, 29. júlí 2009 23:23

matti_goal


Matthías Guðmundsson er aftur orðinn leikmaður Vals. Hann mun færa sig yfir á Hlíðarenda í skiptum fyrir Ólaf Pál Snorrason. Frábærar fréttir sem allir Valsarar hljóta að taka fagnandi! Þetta geta valsarar.is tilkynnt fyrstir miðla.


Digg    Facebook   
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 11. ágúst 2009 09:15
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 7