Nýjustu athugasemdir

Sigur á Selfossi
Fótbolti er skrítinn leikur Tryggvi minn, hver veit nema a...
22:14, 31.08.2010
Ási

Sigur á Selfossi
Tek alfarið undir athugasemd Kristins hér að ofan. Kláru...
19:14, 31.08.2010
OHG

Sigur á Selfossi
Það getur allt gerst í þessum bransa. Fótbolti er skrí...
17:58, 31.08.2010
Tryggvi Jóns

Sigur á Selfossi
Evrópusætið er mjög fjarlægur draumur. Mér reiknast a...
17:20, 31.08.2010
HB

Sigur á Selfossi
Eftir viðburðaríka daga er ekki hægt annað en að hrós...
15:45, 31.08.2010
kristinn

Nafn:

Netfang:

Hundadaga König
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Föstudagur, 30. júlí 2010 14:06

 

konig_norris



Hinn gríðarlega ósannfærandi Dani er loksins farinn frá Val og þótt fyrr hefði verið. Stjórnendur liðsins naga sig eflaust í handabökin yfir að hafa ekki verið fyrri til og sparkað pilti enda voru næg tilefni til.  Þess heldur sýndi Danni König félaginu puttann í síðasta skiptið og stingur af rétt fyrir lok félagaskiptagluggans. Í rauninni er þetta í takt við annað hjá König í sumar og ekki hægt að segja að menn í skrifstofuturni Valsara.is séu blindaðir af sjokki. 

Í staðinn er kominn Íri að nafni Diarmuid O'Caroll sem meðal annars hefur verið á mála hjá Celtic í Skotlandi. Þar vann hann sér helst til afreka að sitja fyrir í tómstunda klæðnaði merktum kaþólska félagi Glasgow borgar en lítið fer af afrekum hans á Celtic Park. Á Wikipedia er hægt að lesa nánar um það sem hann hefur helst áorkað;  http://en.wikipedia.org/wiki/Diarmuid_O'Carroll .

Á þetta ekki annars að vera einhvers konar uppbyggingar tímabil? Maður spyr sig. Nánar að því síðar.

Digg    Facebook   
Besservisserar (15)add comment

Björgvin said:

...
Mér finnst þetta nokk merkilegur pistill. Í fyrsta lagi fannst mér König langt frá því að vera 'gríðarlega ósannfærandi', heldur sívinnandi framherji sem var ekki að fá mjög mikla hjálp fram á við. Vissulega klúðraði hann færum, en endilega teljið þau, skoðið svo hvort það var ekki hann einn sem kom sé í þau og í framhaldinu hversu margir framherjar í deildinni hefðu komið sér í þessa aðstæðu. Ég er ekki viss um að þeir séu svo margir.

Með nýja Írann, þá skín í gegn vantrú á honum og hann er ekki einu sinni lentur. Má ekki aðeins skoða einn eða tvo leiki áður en hann er tekinn af lífi?

Síðasta málsgreinin kemur svo inn á margtuggið efni, að þetta sé uppbyggingartímabil. Hvað hefði penninn hér að ofan viljað sjá gert þegar ljóst var að König fékk samningstilboð frá DK? Ég er viss um að gagnrýnin hefði farið upp fyrir þolmörkin ef ekkert hefði verið gert. König, Habbó og Viktor Unnar farnir, og þá eru ekki margir senterar eftir.

Klárum nú þetta mót með stuðningi við það sem er verið að gera, hver veit nema Valur laumi sér í evrópukeppnissæti svona rétt í lokin!
15:17 | 30 júlí | 2010

Tryggvi Jóns said:

...
Eins og marg oft hefur komið fram var ég ekki hrifinn af König. Hann er með ágætis sprengikraft en það er til lítils að búa sér til 5-6 færi í leik ef þau fara öll í súginn. Menn eru ekki óheppnir endalaust og færa misnotkun König var löngu kominn út fyrir mín þolmörk. Þar við bættist ófagmannleg framkoma hans gagnvart félaginu sem enginn stjórnandi á að sætta sig við frá leikmanni.

Hvað varðar komu þessa Íra þá er það gott og blessað í ljósi þess að nánast enginn framherji er til staðar í hópnum. Þetta er samt frekar þunn ferilskrá hjá manninum og eðlilegt að sett sé spurningamerki við þessi innkaup.

Að sama skapi er frekar furðulega búið um hnútana þegar aðrir mögulegir framherjar eru seldir á miðju tímabili og aðeins König eftir um stöðuna. Ekki nóg með það þá er hann líka með klásúlu um að geta farið á miðju tímabili!

Að lokum varðandi þetta uppbyggingartal. Ef menn leggja út með það fyrir tímabilið að nú eigi að byggja upp nýtt lið þá verður það líka að ná alla leið. Í staðinn eru ungir leikmenn ýmist lánaðir eða seldir og fjórir útlendingar með vafasaman árangur teknir inn.

Mér sýnist við einfaldlega vera á sama reit og fyrir ári síðan þótt vissulega voni maður að Gulli nái að snúa þessu í rétta átt.

16:38 | 30 júlí | 2010 | url

Bjössi said:

...
Heyr heyr Tryggvi!

König er pappakassi sem við áttum aldrei að hafa fengið til félagsins til að byrja með. Ég er ennþá pirraður að hafa misst Viktor kortéri á undan König. Stjórnin er bara úti að skíta eins og svo oft áður. Uppbyggingartímabil my ass.
10:48 | 03 ágúst | 2010

Ási Sveinss said:

...
Það er nokkuð ljóst að þetta uppbyggingartal var aldrei annað en eitthver baktrygging ef það myndi ekki nást árangur. Svo ef árangurinn kæmi þá gætu eitthverjir stærst sig af því eins og eitthverjar hetjur þegar að löngu var ljóst að þetta var rándýrt lið miðað við að ætla að standa í eitthverri uppbyggingu. Danni König gaf félaginu löngu töng þrisvar...þarf ekkert að ræða það neitt meira. Hann fór til Brönshoj í dk og nokkuð ljóst að drengur beið eftir eitthverju í dk enda nennti hann engan vegin að vera hérna. Þetta bara skín í gegn og alveg óþarfi að vera að verja þetta.

Írinn verður bara að fá að sanna sig og ætti hann að fá nægan tíma til þess enda engin samkeppni. Hann er með þunna ferilskrá og finnst mér rétt af Tryggva að nefna það. Sé ekkert neikvætt við það enda eðlilegt að menn spyrji spurninga þegar að engin augljós svör liggja fyrir.
10:55 | 03 ágúst | 2010

Simmi said:

...
Það er nú aldrei nema König hafi nú bara ratað á einmitt þessa "svokölluðu" stuðningsmannasíðu Vals sem geir nú reyndar flest annað en að styðja leikmenn og lið Vals. Varla hafa þær skopmyndir sem birst hafa reglulega af König ásamt nafni hans á flugmiða fengið hann til að hugsa sig tvisvar um.

Allt væl um stjórnina er hreint hlægilegt enda flestir sammála um að Valur hafi gert vel heppnaða ferð á leikmannamarkaðinn fyrir tímabilið. Leikmenn eins og Rúnar Már og Haukur eru lykilmenn í framtíðaráætlun Vals og voru báðir frábær fengur enda efnilegir og eftirsóttir leikmenn. König var fengin inn stuttu fyrir mót enda kom bersýnilega í ljós á undirbúningstímabilinu að liðinu vantaði einfaldlega striker. Liðið er ungt en þó vel sterkt og ég tel einfaldlega að árangurinn eigi að vera betra en hann hefur verið hingað til.

Einnig er allt tal að Valur sé á svipuðum slóðum og í fyrra bata hreint bull út í loftið, það er gríðarlegur efniviður í Val og af leikmönnum sem eru að spila. Haraldur Björnsson, Einar Marteinsson, Haukur Páll, Rúnar Már, Arnar Sveinn, Guðmundur Steinn ofl ásamt því að 2 flokkurinn er nokkuð sterkur, þetta er allt ungir Valsmenn sem eiga möguleika að mynda sterkt lið ásamt nokkrum aðkomumönnum.

Hættiði nú þessu endalausu væli og styðjið liðið!!!!
14:57 | 03 ágúst | 2010

Bjössi said:

...
Þetta eru fullorðnir menn sem fá borgað fyrir að spila fótbolta. Stórlega efast það að þeir taki gagnrýni stuðningsmanna mikið inn á sig. Ef þeir gera það, þá geta þeir ekki svarað því betur en á vellinum, ekki með að hoppa upp í næstu vél til dk.

Afhverju erum við ekki að keyra meira á þessum mikla efnivið sem við eigum fyrst að það er uppbyggingartímabil í gangi?
15:40 | 03 ágúst | 2010

Addi said:

...
Þessi "stuðnings" síða er búin að ná markmiði sínu með því að losna við Köning. Ég legg til að hún verði núna lögð niður enda tilgangnum náð. Til hamingju!
16:56 | 03 ágúst | 2010

Simmi said:

...
Það var hreint með ólíkindum að sjá "stuðningsmannasíðu" Vals leggja leikmann liðsins í einelti, einnig eru endalausar dillur út í aðra menn og ég held að það sé bara tímaspursmál hvenær næsti leikmaður verður fyrir barðinu á eineltinu hérna. Ég hef skoðað aðrar stuðningsmannasíður og þar er ekki nálægt því að svona hlutir tíðkist og ekki einu sinni á KR síðunni.
17:14 | 03 ágúst | 2010

Maó formaður said:

...
Legg til að þessari síðu verði lokað núna strax. Einnig vil ég að spjallborði á Valur.is verði lokað strax. Það hefur verið vettvangur fyrir kjaftasögur, getgátur og upphrópanir. Þetta viljum við ekki sjá í Val.
18:19 | 03 ágúst | 2010

Ási Sveinss said:

...
Hann Simmi er greinilega á því að Valur eigi að vera svona Real Madrid Íslands og skipti ekki máli hvað það kostar heldur bara að fá það. Opin skoðanaskipti hafa verið litin hornauga lengi hjá Val og eru greinilega nokkrir hér því sammála. Skemmtilegt það....
18:43 | 03 ágúst | 2010

nimbo said:

...
Hvaða djöfulsins væl er þetta? Danni fulli treyjukastari drullar yfir félagið og það virðist einhvern veginn vera þessari síðu að kenna! Ég hef sjaldan lesið aðra eins steypu.........
19:33 | 03 ágúst | 2010

Addi said:

...
Þessi síða er eins og eitrað peð innan knattspyrnudeildarinnar. Hér er verið að taka fyrir einstaka leikmenn, þjálfarann og stjórnina og tilgangurinn á alltaf að helga meðalið. Hvernig haldið þið sem verjið þetta að þessi síða líti út fyrir öðrum stuðningsmönnum Vals sem eru ekki sammála þessum skrifum? Já eða fyrir leikmönnum sem skoða þetta? Neikvæðnin og niðurrifið hérna er með hreinum ólíkindum og það væri best fyrir alla aðila ef þessari síðu væri lokað.
20:50 | 03 ágúst | 2010

asi said:

...
Tad sja allir ad tad er eitthvad sem er ekki ad smella hja Val, hvort sem ad tad sei leikmannahopurinn, tjalfarateymid eda stjornin veit eg ekki. Tad er einungis mennskt ad gera mistok en menn verda ad geta vidurkennt tau. Tad er altalad ad morallinn i herbudum Vals er lelegur og verdur ad vera haegt ad gagnryna menn sem ad lata ollum illum latum. danni var skipt ut gegn haukum og brast vaegast sagt illa vid med mikilli vanvirdingu gagnvart felaginu. Svo datt hann heiftarlega i tad rett fyrir mikilvaegan bikarleik tar sem ad hann lennti medal annars i slagsmalum og er fyrstur madur a blad eftir ad tad kom i ljos. nu hoppar hann til fyrsta felags sem vill hann en ennta tykir oedlilegt ad gagnryna tad...mer finnst tetta svolitid skritid.
23:13 | 03 ágúst | 2010

Valli said:

...
Þessari síðu er haldið út af fólki sem hefur sínar eigin skoðanir á málefnum Vals.
Þann dag sem menn mega ekki hafa sjálfstæðar skoðanir á málefnum síns félags, er eins gott að breyta félaginu bara í saumaklúbb þar sem menn geta hist og high-fævað hvorn annan, milli þess sem þeir sötra latte og klappa hvor öðrum á bakið.

Svo skal það ítrekað og endurtekið enn einu sinni að ef menn hafa áhuga á, þá er þeim meira en frjálst að bjóða fram krafta sína til pistlaskrifa hér á síðunni. Finnist mönnum vera á einhverja hallað hér, geta þeir óskað eftir því að fá að vera hér fastir pennar og viðrað sín sjónarmið. Póstfangið er sem fyrr Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Kommentakerfið hérna er svo öllum opið sem ekki hafa sig í að skrifa reglulega pistla.

Addi, ef þú ert ósáttur máttu gjarnan senda okkur pistil undir nafni, og í kjölfarið gerast penni á síðunni.
17:14 | 04 ágúst | 2010 | url

Ási said:

...
Bara svona til að vera forvitinn, getur eitthver vitnað í öll þessi niðurrif þar sem að menn eru teknir hreinlega af lífi hérna á síðunni?
18:34 | 04 ágúst | 2010

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy