|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Fimmtudagur, 03. júní 2010 21:17 |
|

Valur rétt kreisti fram sigur í kvöld gegn Aftureldingu úr Mosfellsbæ í leik sem minnti um margt á síðasta tímabil. Mörk frá Hauki Páli og Viktori Unnari nægðu eftir að gestirnir höfðu náð forystu í fyrri hálfleik. Vítaspyrna fimm mínútum fyrir leikslok gerði gæfumuninn fyrir Valsliðið sem var í óendanlegum vandræðum með Mosfellinga. Aftureldingarmenn sem eru einhverjum 20 sætum fyrir neðan okkur í deildarkeppninni mega vera svekktir að hafa ekki lifað út í framlengingu en Valsmenn þurfa heldur betur að girða sig í brók áður en þeir mæta undirsátum Loga Ólafssonar í Frostaskjóli. Hafnfirski brandarakarlinn var á meðal áhorfenda í kvöld og hefur eflaust séð ýmsa veika hlekki á Valsliðinu.
Leikurinn byrjaði alveg þokkalega og Viktor Unnar sem kom inn í byrjunarliðið átti m.a. tvö skot í tréverkið. Ef piltur væri í aðeins betra leikformi hefði lokafrágangurinn eflaust verið aðeins vandaðri. Framan af virtist vera gríðarlegur getumunur á liðunum en Valsmenn voru þó full værukærir þegar fór að nálgast markið. Þessi mikli munur sem sýndi sig framan af virtist gera það að verkum að Hlíðarendapiltar slökuðu full mikið á í sýnum aðgerðum. Þegar um 25 mínútur voru liðnar af leiknum fengu gestirnir sínar fyrstu hornspyrnu en eflaust hafa menn lagt áherslu á æfingasvæðinu að ná einhverju úr föstum leikatriðum. Það gekk heldur betur eftir þegar Kjartan Sturluson missti boltann yfir sig beint fyrir fætur Aftureldingarmanns sem potaði boltanum yfir línuna af stuttu færi.
Valsliðið vaknaði við þennan kinnhest og rétt tæpum þremur mínútum síðar jafnaði Haukur Páll Sigurðsson metin. Glæsilegt mark hjá Hauki sem lagði boltann snyrtilega í hornið með skoti rétt utan vítateigs. Staðan 1-1 og flestir á því að Mosfellingar væru búnir með sýna sólarglætu. Svo reyndist ekki.

Gestirnir stóðu furðu vel í okkar mönnum og það er visst áhyggjuefni þegar leikmenn Vals hafa ekki það sem þarf til að ganga frá leikjum sem þessum fljótt og örugglega. Markaþurrðin var farin að pirra Gunnlaug sem skipti inn á Danni König til að bjarga málunum þegar um 20 mínútur voru eftir. König hleypti nýju lífi í sóknarleikinn en segja má að Valsmenn geti verið fegnir því að ekki voru beittari menn í fremstu víglínu gestanna sem fengu sín færi til að komast yfir að nýju.
Það tókst sem betur fer ekki. Þess í stað náði Danni König að stinga sig inn fyrir vörn Mosfellsbæinga og fiska víti þegar um fimm mínútur voru til leiksloka. Viktor Unnar steig á punktinn og kláraði snyrtilega öðrum Völsurum á Hlíðarenda til mikils léttis.
Stemmningin var eins og búast mátti við í bikarleik milli tveggja ójafnra liða. Gestirnir sungu hástöfum en heimafólk lét fara vel um sig og bjó sig undir þægilegan sigur. Einstaka áhorfendur gerðust nokkuð óþreyjufullir eftir því sem á leið en sigur hafðist þó undir lokin. Mætingin var með slappasta móti og mun minni hjá gestunum en í fyrra þegar annar hver íbúi Álftanes gerði sér ferð á Hlíðarenda til að hvetja sitt lið. Dómari leiksins stóð sig með prýði, leyfði mátulega mikla hörku, hafði spjöldin djúpt í vasa sér og gerði rétt í lokin þegar Valur fékk víti þó svo að Daði Dervic og félagar hafi látið í sér heyra.
Valur stillti upp sterku liði gegn Aftureldingu og ekki nema tveir til þrír leikmenn sem ekki teljast til hefðbundinni byrjunarliðsmanna. Eflaust hefur verið lagt upp með að klára leikinn sem fyrst til að menn gætu tekið það tiltölulega rólega fyrir KR leikinn á mánudag. Sú áætlun gekk þó ekki eftir og menn þurftu að nota full mikla orku við að slá út neðrideildarlið Aftureldingar.
Næst er það KR í Frostaskjóli og þá mæta vonandi allir með rétt hugarfar. Nánar að því síðar.
 |
|
Síðast uppfært: Föstudagur, 04. júní 2010 13:51 |