Nýjustu athugasemdir

Sigur á Selfossi
Fótbolti er skrítinn leikur Tryggvi minn, hver veit nema a...
22:14, 31.08.2010
Ási

Sigur á Selfossi
Tek alfarið undir athugasemd Kristins hér að ofan. Kláru...
19:14, 31.08.2010
OHG

Sigur á Selfossi
Það getur allt gerst í þessum bransa. Fótbolti er skrí...
17:58, 31.08.2010
Tryggvi Jóns

Sigur á Selfossi
Evrópusætið er mjög fjarlægur draumur. Mér reiknast a...
17:20, 31.08.2010
HB

Sigur á Selfossi
Eftir viðburðaríka daga er ekki hægt annað en að hrós...
15:45, 31.08.2010
kristinn

Nafn:

Netfang:

Dós af rassskellingu
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Þriðjudagur, 13. júlí 2010 13:18

 

rassskelling


Valsarar voru mættir í Laugardalinn í gær til að horfa á sína menn glíma við Framara í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar. Í jafnteflisleik liðanna á dögunum misstu Valsmenn dampinn eftir góða byrjun og svipaða sögu var að segja um leikinn í gær. Munurinn var einna helst sá að í gær fengu Valsmenn enga forgjöf frá gestgjöfunum en hin alræmda Gjafavörudeild Valsliðsins var í essinu sínu líkt og svo oft í sumar. 3-1 sigur Framara var sanngjarn í alla staði og allt stefnir í miðjumoð þriðja tímabilið í röð.

Gunnlaugur Jónsson kippti sér greinlega lítið yfir peysukasti Danni König gegn Haukum og var Daninn í byrjunarliðinu að vanda. Viktor Unnar fékk einnig tækifæri í fjarveru Arnars Sveins en að öðru leyti var byrjunarliðið með hefðbundnu sniði.
Valsliðið leit þolanlega út í fyrri hálfleik og virtist vel geta staðið í hinu spræka liði Fram. Fátt var þó um fína drætti og mikil stöðubarátta á miðjunni einkenndi leikinn. Sóknarleikur Vals var frekar takmarkaður en sama mátti segja um Fram.

Í síðari hálfleik tóku hjólin að snúast og það á sveif með Framliðinu. Almar Ormarsson var nálægt því að brjóta ísinn í nánast fyrstu sókn Fram en Kjartan sýndi gamalkunna takta og bjargaði á ótrúlegan hátt.
Færið var ekki til þess að hrista upp í Valsliðinu heldur fór allt í gang hjá Frömurum sem tóku sig til og völtuðu algjörlega yfir sljóa Valsmenn. Á átta mínútna kafla opnuðu Framarar dós af rassskellingum og sturtuðu yfir Valsara. Þrjú mörk litu dagsins ljós á þessum kafla og þrátt fyrir að Valur hefði minnkað muninn um fimm mínútum eftir þriðja mark Fram einkenndi hálfgerður doði liðið og sýndu fáir leikmenn þess merki að hafa getu til að rífa sig upp og setja pressu á Framara. Öruggur sigur Fram niðurstaða og lítið hægt að segja um frammistöðu Valsmanna sem ekki hefur verið tíundað undanfarið.


Water22

Stemmingin í stúkunni hefur verið með daufasta móti í sumar en helstu kanónur úr stuðningsmannaliðinu virðast hafa öðrum hnöppum að hneppa um þessar mundir. Eitthvað er lítið um endurnýjun í hópnum en vonandi náum við að taka okkur saman í andlitinu að þessu leyti á seinni hluta Íslandsmótsins.

Flogið var með einn slakasti dómara deildarinnar, Þórodd Hjaltalín junior (já hann nefnir sig junior!), frá Akureyri til að stjórna flautunni og hans helsta axarskaft var þegar Hannes Halldórsson fékk aukaspyrnu eftir villt úthlaup. Atli Sveinn kom boltanum í netið en markið stóð ekki. Annars voru yfirburðir Framliðsins slíkir að Valsmenn voru fremur ólíklegir til að komast inn í leikinn svo lítið stoðar að ræða hlutverk dómarans.

Á dögunum var reifað hversu erfitt er fyrir Gunnlaug að stokka upp í vörninni. Breiddin er lítil og menn velja sig nánast sjálfir í liðið þrátt fyrir skelfileg afglöp. Nú er svo komið að Gunnlaugur einfaldlega verður að taka til í öftustu línu ef hann ætlar að verða langlífur í starfi. Auðvitað er ekkert komið að þeim tímapunkti að skipta út Gunnlaugi en þolinmæðin fyrir reynslulitlum þjálfara sem á engan bakgrunn innan félagsins er eðlilega ekki sú sama heldur en ef um mann eins Kristin Lárusson væri að ræða, svo einhver sé nefndur.


vatnsberi
Hugsað út fyrir kassann: vatnsberinn fær tækifæir

Reynir Leósson virðist ekki ganga heill til skógar þessa dagana og það er alveg ljóst að tæpur Reynir er verri en enginn Reynir. Eins hefur Atli Sveinn ekki verið að eiga sitt besta tímabil en þeir félagar missa menn á milli sín nánast leik eftir leik. Sama má segja um Sigurbjörn sem hefur staðið sig prýðilega fram á við en veitir varnarmönnum litla sem enga hjálp þegar liðið er að verjast. Þegar þessir burðarásar eru ekki að skila sínu fer allt í hund og kött annars staðar á vellinum.

Svo við hugsum aðeins út fyrir hinn hefðbunda ramma þá má helst líta til Einars Marteinssonar sem er í láni hjá HK til að koma inn í liðið. Ef það er ekki hægt að notast við Einar í þessari aðstöðu er ærlegra að segja drengnum hreint út að ekki sé þörf fyrir hann hjá félaginu. Eins mætti athuga að nýta krafta Hauks Páls í miðvarðarstöðunni miðað við ástand mála. Haukur er fylginn sér og gæti kannski tekið að sér að loka Gjafavörudeild liðsins.
Helsti höfuðverkur hins lítt reynda þjálfara Valsliðsins er að þétta raðrinar og varla er útileikur gegn FH maskínunni drauma andstæðingur í þessari stöðu. Sá leikur er í Kaplakrika á sunnudaginn klukkan 19.15. Nánar að því síðar.

Digg    Facebook   
Besservisserar (5)add comment

p-sæm said:

...
ég er skíthræddur um næsta leik...
14:56 | 13 júlí | 2010

HB said:

...
Þetta var ekki nægjanlega gott en við hverju er hægt að búast af liðinu? Ég gerði mér vonir um sirka 5. sæti fyrir mótið. Eftir 5 leikja sigurgöngu voru væntingarnar orðnar meiri en nú ætti maður að komast á jörðina aftur. Svo spilar líka inn í léleg byrjun hjá liðum sem allir héldu að yrðu við toppinn og eru að skríða til baka núna.
21:00 | 13 júlí | 2010

Addi said:

...
Greinilega á ekki að láta af neikvæðum athugasemdum í garð liðsins hér. Ég ítreka skoðun mína um að þessi síða er ekki að hjálpa liðinu og hefur ekkert með stuðning að gera.

FH er að spila erfiðan leik í evrópukeppni í dag svo kannski mun ferðalagið til Hvíta Rússlands sitja í þeim þegar kemur að leiknum. Hef fulla trú á strákunum á sunnudaginn, held að þeir séu farnir að þrá sigur. Koma svo og hvetja liðið!
09:48 | 14 júlí | 2010

Valli said:

...
Fullorðnum karlmönnum er enginn greiði gerður með því að klappa þeim á bakið þegar þeir standa sig illa í vinnunni.
17:52 | 14 júlí | 2010 | url

Borko said:

...
Einar Marteins heim!!!
00:23 | 17 júlí | 2010

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 13. júlí 2010 14:21