|
• Sigur á Selfossi Fótbolti er skrítinn leikur Tryggvi minn, hver veit nema a... |
| 22:14, 31.08.2010 |
| Ási |
|
• Sigur á Selfossi Tek alfarið undir athugasemd Kristins hér að ofan. Kláru... |
| 19:14, 31.08.2010 |
| OHG |
|
• Sigur á Selfossi Það getur allt gerst í þessum bransa. Fótbolti er skrí... |
| 17:58, 31.08.2010 |
| Tryggvi Jóns |
|
• Sigur á Selfossi Evrópusætið er mjög fjarlægur draumur. Mér reiknast a... |
| 17:20, 31.08.2010 |
| HB |
|
• Sigur á Selfossi Eftir viðburðaríka daga er ekki hægt annað en að hrós... |
| 15:45, 31.08.2010 |
| kristinn |
| Floppað gegn Fram |
| Höfundur: Tryggvi Jónsson | ||||||||
| Miðvikudagur, 07. júlí 2010 12:16 | ||||||||
|
Valur mætti í Laugardalinn á mánudaginn gegn nærfatamódelstrákunum í Fram. Fyrirfram máttu heimamenn teljast líklegri en Valsliðið sýndi góða takta í fyrri hálfleik. Ef ekki hefði verið fyrir endemis klaufaskap hjá varnarlínunni hefðu þrjú stig átt að falla í skaut Vals en þegar uppi var staðið máttu menn vera sáttir með að sleppa með 2-2 jafntefli.
Valsmenn fóru vel af stað í leiknum og átti Jón Vilhelm fyrsta færið þegar Hannes Halldórsson mátti hafa sig allan við að verja skalla frá honum. Nokkrum mínútum síðar náði Guðmundur Steinn Hafsteinsson að brjóta ísinn með laglegu skallamarki úr miðjum vítateig. Guðmundur hefur heldur betur verið skeinuhættur frá því hann sneri til baka frá HK og ljóst að æ erfiðara verður fyrir Gulla að halda honum utan byrjunarliðs með sama áframhaldi.
Leikmenn Vals voru ekki á því að liggja til baka og skömmu eftir markið fiskaði Stefán Jóhann vítaspyrnu. Danni König steig á punktinn en Hannes Halldórsson varði kæruleysislega spyrnuna. König virðist þurfa helst að klúðra nokkrum færum áður en hann skorar og greinilegt að vítaspyrnur ná yfir eins og 2-3 hálffæri því skömmu síðar skallaði Daninn boltann í netið eftir aukaspyrnu frá Martin Pedersen. Staðan orðin 0-2 og menn farnir að vonast eftir að það væri nægjanlegur stuðpúði til að halda Frömurum í hæfilegri fjarlægð.
Maðurinn sem hataði míkrafóna: Þorvaldur Örlygsson þjálfari Fram
En menn skulu ekki vanmeta Gjafavörudeildina í Valsliðinu sem saknaði að vísu fyrirliða liðsins en hann tók einmitt út leikbann. Allt leit út fyrir að Valur myndi að halda hreinu í heilan hálfleik en Gjafavörudeildin var aldeilis ekki á þeim buxunum. Í uppbótartíma fyrri hálfleiks fengu Framarar hornspyrnu sem Kjartan náði að slá út en ekki lukkaðist hreinsunin betur en svo að Framarar náðu annari fyrirgjöf og þá misreiknaði Kjartan sig herfilega. Jón Guðni Fjóluson komst á undan í boltann og skallaði í netið af stuttu færi. Líflína fyrir Safamýrarpilta sem höfðu verið sundurspilaðir í 45 mínútur af 46. Framarar voru ekki langt frá því að jafna strax í upphafi seinni hálfleiks og allt frá byrjun voru Valsarar á bakpedalanum. Heimamenn hreinlega óðu í færum en það var helst í föstum leikatriðum sem Valsmenn ógnuðu marki Framliðsins. Vörn Vals var aftur á móti með tæpasta móti og þegar Kjartani mistókst að eiga við stutta sendingu til baka og sendi beint á sóknarmann Fram virtist óhjákvæmilegt að hinir bláklæddu myndu jafna. Kjartan gat notað síðasta aukalífið sitt í því tilfelli og varði vel eftir að hafa komið sjálfum sér og liðinu í vandræði. Framarar héldu áfram að vaða í færum og á 75. mínútu jöfnuðu þeir leikinn. Aukaspyrna vel utan vítateigs sveif inn í teiginn og enginn Valsari var þess fær að skalla boltann í burtu sem síðan skoppaði við markteiginn og framhjá Kjartani sem stóð steinrunninn á línunni, eflaust minnugur fyrra marksins.
Lagt á ráðin?
Kiddi Jak situr hér við háborðið ásamt öðrum valinkunnum KR-ingum Í fagnaðarlátunum gleymdi Jón Guðni Fjóluson sér og danglaði löppinni í Danni König sem lá í grasinu. Leikmenn Fram höfðu verið að kýta talsvert við König í leiknum og Kristinn Jakobsson mat þetta sem fólskubrot. Jón Guðni slapp betur frá þessu broti en Ásgeir Börkur Ásgeirsson hjá Fylki sem fékk á dögunum þriggja leikja bann fyrir olnbogaskot. Líklega hefur Besti dómari landsins™ eitthvað tónað sig niður í leikskýrslunni. Þrátt fyrir að vera manni fleiri en Framarar voru Valsarar gjörsamlega vindlausir eftir jöfnunarmarkið. Heimamenn stjórnuðu allri umferð á miðjunni og okkar mönnum var lífsins ómögulegt að ná tökum á leiknum. Á lokamínútunum fengu Framarar nokkur góð færi til að hirða öll þrjú stigin en Kjartan Sturluson bjargaði jafntefli fyrir Val og jafnframt eigin andliti eftir að hafa átt sinn þátt í mörkum Fram. Kiddi Jak stjórnaði flautleik í dag og var bara nokkuð góður, gaf Val víti aldrei þessu vant en Framarar þykjast hlunnfarnir yfir rauða spjaldinu sem hann gaf þeim. Nærvera hans hefur samt líklega þýtt að Valsliðið lagði ekki í það að vinna leikinn. Það er hægt afbaka ýmsilegt með tölfræði en hún afhjúpar einnig óhjákvæmilegar staðreyndir. Á síðasta tímabili hélt Valur þrisvar sinnum hreinu marki í deildinni, síðast í 16. umferð gegn Þrótti. Í fyrra fengum við á okkur 43 mörk í 22 leikjum eða næstum tvö mörk í leik. Í ár er hlutfallið 15 mörk í 10 leikjum eða eitt og hálft mark í leik og enn á liðið eftir að ganga af velli án þess að fá á sig mark. Næsti leikur er gegn botnliði Hauka á sameiginlegum heimavelli liðanna og væri kærkomið að sjá Valsmenn sleppa því að gefa leiguliðunum ódýrar gjafir. Nánar að því síðar.
Besservisserar (4)
![]()
Addi
said:
|
|
... Á þetta ekki að vera STUÐNINGS-síða Vals? Er þá ekki full hart að tala um gjafavörudeild þegar rætt er um leikmenn liðsins? Kiddi var góður enda er þetta tómur hugarburður í mönnum að hann dæmi sérstaklega gegn Val. |
|
... Stuðningsmenn eiga að horfa gangrýnynum augum á liðið sitt og láta í sér heyra varðandi það sem þeim finnst aðfinnsluvert. Það er engum greiði gerður með því að halda úti síðu sérstaklega til að rúnka egóum. Það er staðreynd að Valur hefur ekki haldið hreinu í 15 leikjum í röð í deildinni. Það er áhyggjuefni Vinur er sá er til vamms segir. |
|
... Auðvitað er það áhyggjuefni hvað vörnin er lek. En ég er að gagnrýna þetta uppnefni "gjafavörudeildin" sem er síðunni ekki til framdráttar og hreinn dónaskapur við leikmenn liðsins. |
|
... Ef það væru veitt verðlaun fyrir skemmtilegustu stuðningssíðu félags þá myndi þessi fá þau. Eins og í umfjölluninni um Haukaleikinn, myndir af fuglum og flugmiðum. Til að svona síða sé þess virði að lesa þarf góðan húmor og sæmilega beitta rýni og þessi hefur bæði, að mínu mati. Þeir sem skrifa um leikina verða svo að fá nota sína tilfinningar sem í þeim búa eftir leikina, hvort sem þeir eru glaðir eða reiðir eða hvað. Ég held að það þeir séu heldur ekki það margir sem móðgist yfir "gjafavörudeild" eða "gjafapakkar" og þvíumlíkt. En ef mönnum finnst mjög óþægilegt að lesa þessi skrif hérna er alltaf hægt að lesa pönnukökuflatar umfjallanir annara miðla. Áfram Valur og Valsarar.is |