Nýjustu athugasemdir

Sigur á Selfossi
Fótbolti er skrítinn leikur Tryggvi minn, hver veit nema a...
22:14, 31.08.2010
Ási

Sigur á Selfossi
Tek alfarið undir athugasemd Kristins hér að ofan. Kláru...
19:14, 31.08.2010
OHG

Sigur á Selfossi
Það getur allt gerst í þessum bransa. Fótbolti er skrí...
17:58, 31.08.2010
Tryggvi Jóns

Sigur á Selfossi
Evrópusætið er mjög fjarlægur draumur. Mér reiknast a...
17:20, 31.08.2010
HB

Sigur á Selfossi
Eftir viðburðaríka daga er ekki hægt annað en að hrós...
15:45, 31.08.2010
kristinn

Nafn:

Netfang:

Keflaðir
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Sunnudagur, 27. júní 2010 23:56


willum

Starðir niður: Willum leit aldrei til baka á Hlíðarenda

Eftir ágætis gengi í deild og bikar undanfarnar vikur var loks komið að tapleik hjá liði Vals. Keflvíkingar komu á Hlíðarenda og sóttu þægileg þrjú stig þar sem Valsmenn voru ávallt skrefinu á eftir. Framan af leik benti ýmislegt til að allt stefndi í meiriháttar störukeppni líkt og varað var við hér á síðunni á dögunum. Okkar menn voru á undan að deppla augum og í enn eitt skiptið í sumar fáum við á okkur mark vegna lélegrar varnarvinnu.

Tölfræðin var ekki beint á okkar bandi fyrir þennan leik. Alls höfum við spilað ellefu leiki í deild og bikar og það kom engum á óvart að Keflvíkingar skildu skora enda hefur Valsliðinu mistekist að halda hreinu í einum einasta þessara leikja. Keflvíkingar hata ekki heldur að spila útileiki við Val en síðast unnum við þá heima árið 1997. Síðasti sigurleikur Suðrunesjamanna kom að vísu árið 1999, allir hinir hafa endað með jafntefli þar til í dag.

Bæði lið fóru sér engu óðslega framan af þótt að einstaka færi litu dagsins ljós. Danni König fékk þrjú álitleg færi í fyrri hálfleik en tókst ekki að nýta neitt þeirra en eftir góða byrjun á Íslandsmótinu hefur dregið talsvert af Dananum. Hann má eiga að hann er oft á tíðum að skapa færin sín á eigin spýtur en ef Valur á að stíga upp fyrir meðalmennskuna þetta tímabil þarf König að geta klárað sénsana sína með afgerandi hætti.

Keflavík var ekki beint að sundurspila Valsliðið og með aukinni pressu hefðu þeir aldrei fengið tíma til að skora þessi tvö mörk sín. Fyrra mark þeirra var sérlega vandræðalegt fyrir Valsmenn. Bakvörðurinn Guðjón Árni Antoníusson fékk boltann fyrir framan miðjuhringinn, hoppaði upp úr lélegri tæklingu frá Bjössa, stakk sér síðan með auðveldum hætti milli miðvarða Vals þeirra Reynis og Atla Sveins og eftirleikurinn gegn Kjartani var auðveldur.


willum_gunnlaugur
Willum var skrefi á undan Gulla í dag

Þegar um 10 mínútur voru eftir skoruðu Keflvíkingar síðan á ný og gerðu endanlega út um leikinn með laglegu marki rétt fyrir utan vítateig. Atli Sveinn náði ekki að loka á skot Brynjars Guðmundssonar sem skrúfaði boltann í hornið. Valsarar virkaðu aldrei líklegir til að jafna leikinn í stöðunni 0-1 og með seinna markinu var ljóst að allur vindur var úr liðinu. 

Eftir erfiða útileiki gegn Stjörnunni og síðan Víkingum á síðustu dögum var Valsliðið auð afhjúpað. Valsvörnin er oft á tíðum að gera erfiðu hlutina vel en fær síðan yfirleitt á sig ódýr mörk. Frá sjónarhóli Keflvíkinga var mark Guðjóns eflaust glæsilegt einstaklingsframtak sem þurfti til að brjóta upp pattstöðuna en með Vals gleraugunum er ekki hægt að horfa fram hjá veikleika merkjum liðsins. Það er erfitt að koma auga á möguleika fyrir Gunnlaug til að stokka upp varnarlínunni og eins er spurning hvort það sé beint kominn tími til að ýta á neyðarhnappana.

Eitt helsta vandamálið er að aftasti hluti liðsins velur sig nánast sjálfur þrátt fyrir að gera mistök sem hægt er að forðast. Eitthvað verður þó að gerast þegar það er nánast hægt að ganga að því sem vísu að liðið mun gefa andstæðingunum ódýr mörk. Gunnlaugur Jónsson sem var með betri varnarmönnum í íslensku deildinni á sínum leikferli þarf að sanna að hann geti barið í brestina sem þjálfari. Liðið er alltof vel mannað til að hleypa inn skammarlegum mörkum leik eftir leik.


kjartansturlu
Kjartan fagnar hér síðasta hreina marki sínu. Gegn Þrótti. Í fyrra.

Kjartan verður ekki sakaður um mörkin í dag en hann á sinn hlut í mörgum þeirra í sumar. Haraldur Björnsson markvörður U-21 árs landsliðsins var lánaður út tímabilið til Þróttar og því er ekki hægt að kippa honum inn í liðið. Varamörkvörðurinn Ásgeir Þór Magnússon er U-19 ára landsliðsmarkvörður og líklega yrði það full róttækt að setja hann inn á. Það er helst að Gunnlaugur geti reynt að stokka upp miðvarðarstöðurnar með því að setja annað hvort Ross eða Petersen þar. 

Þetta eru auðvitað aðeins vangaveltur en kannski er alveg eins gott fyrir þjálfarann að halda sig við svipaða varnarlínu og vona að aðeins sé tímaspursmál hvernær allt smelli saman. Á löngum köflum lítur liðið þokkalega út en mistökin eru jafnan dýrkeypt og skilja oft á milli núll og þriggja stiga.
Næsti leikur er gegn erkifjendum okkar í Fram þann 4. júlí á Þjóðarleikvangnum því Framarar eiga hvergi heima (nema veginum á). Nánar að því síðar.

Digg    Facebook   
Besservisserar (6)add comment

jebbinn said:

...
Fyrir það fyrsta þá er vörnin alltaf að galopnast - 1-2 mörk í hverjum einasta leik. Keflavík hefur ekki skorað tvö mörk í deildinni í sumar fyrr en núna.

Við ættum að þekkja Willum - hann planara andstæðing inn við bein og var greinilega búinn að ofurgreina Val. Enda kom Valur til leiks með nákvæmlega sama mannskap og skipulag og síðustu leiki. Þetta varð því frekar einfallt fyrir Willuminn.

Hvaða útspil kemur Gulli með? Ekkert! Arnar Sveini var tekinn sérstaklega hjá Keflavík (ofurgreint hvernig ætti að verjast honum) - hefði t.d. verið hægt að setja hann á miðjuna eða fram - Það hefði alveg rústað varnarskipulagið Keflavíkur - þeir hefðu þurft að hugsa allt upp á nýtt.

Já t.d. hefði verið hægt að setja Ross á miðjuna eða fram o.s.frv.
16:35 | 28 júní | 2010 | url

Samba said:

...
Stjarnan rústaði Keflavík um daginn með því að spilla villtan bolta. Svoleiðis höndlar Willum ekki.
00:39 | 29 júní | 2010

HB said:

...
Leikurinn við Fram er 5. júlí. Atli Sveinn verður í banni sem neiðir Gulla til að breyta vörninni. Ég held að það sé ekki endilega gott því oft er Reynir að gefa mörkin frekar en Atli.
22:13 | 29 júní | 2010

OHG said:

...
Ég held að Danni König hefði gott af því að byrja á bekknum í næsta leik. Gefa Viktori Unnari séns til að sanna sig og ef það gengur ekki má þá skipta Dananum inná. Það að hann hafi byrjað vel í sumar finnst mér ekki nægilegt til þess að hann eigi bara fast sæti í byrjunarliðinu restina af seasoninu. Yrði ákveðið reality check fyrir hann að vita að hann gengi ekki að stöðunni vísri.
23:18 | 29 júní | 2010

Fungus said:

...
Danni König ætti að vera kominn með 7-8 mörk a.m.k. miðað við færin. Lið sem ná árangri eru undantekningalaust með 10 marka mann í sínum röðum og Danni König verður bara að fara gíra sig upp. Viktor verðskuldar sénsinn eins og aðrir ef það gerist ekki og svo þarf þessi vörn að þjappa sér saman. Miðjan með Bjössa í fararbroddi er búin að vera besti hluti liðsins það sem af er.
23:57 | 29 júní | 2010

Valþór said:

...
Já Sigurbjörn er búinn að eiga sitt besta tímabil síðan 2007, og sannar að lengi lifir í gömlum glæðum, svo sannarlega
14:34 | 02 júlí | 2010 | url

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Mánudagur, 28. júní 2010 01:21