|
• Sigur á Selfossi Fótbolti er skrítinn leikur Tryggvi minn, hver veit nema a... |
| 22:14, 31.08.2010 |
| Ási |
|
• Sigur á Selfossi Tek alfarið undir athugasemd Kristins hér að ofan. Kláru... |
| 19:14, 31.08.2010 |
| OHG |
|
• Sigur á Selfossi Það getur allt gerst í þessum bransa. Fótbolti er skrí... |
| 17:58, 31.08.2010 |
| Tryggvi Jóns |
|
• Sigur á Selfossi Evrópusætið er mjög fjarlægur draumur. Mér reiknast a... |
| 17:20, 31.08.2010 |
| HB |
|
• Sigur á Selfossi Eftir viðburðaríka daga er ekki hægt annað en að hrós... |
| 15:45, 31.08.2010 |
| kristinn |
| Reitingslegt í KFUM atinu |
| Höfundur: Tryggvi Jónsson | ||||||||||||||||
| Föstudagur, 09. júlí 2010 00:34 | ||||||||||||||||
|
Leiguliðarnir á Hlíðarenda komu og sýndu ábúendunum í Valsliðinu æfingar í knattraki og hvernig hægt er að láta boltann ganga manna á milli endrum og sinnum. Gjafavörudeildin í Valsliðinu stóð fyrir sínu og fengu Haukarnir tvo pakka upp í hendurnar. Þrátt fyrir önnur gylliboð létu Haukar þar við sitja enda talsvert eftir af leigusamningnum. 2-2 jafntefli og Valur fjarlægist toppbaráttuna þessa dagana með hverri umferð.
Leikurinn hófst nokkuð rólega en ef eitthvað var þá virtust Haukamenn áhugasamari. Eftir um 25 mínútur tóku leigjendurnir af skarið þegar Valsvörnin sundurspiluð í eitt fjölmörgum skiptum í sumar þegar Hilmar Geir Eiðsson rak endahnútinn á fallega sókn Hauka. Menn í stúkunni eru hættir að kippa sér upp við ýmislegt en leiða má líkum að því stór hluti „marka sumarsins“ munu hafa verið skoruð gegn Val þegar leiktímabilið verður gert upp.
Haukar réðu lögum og lofum í lofti sem á legi en rétt fyrir leikhlé tókst Ian Jeffs að jafna þvert á gang leiksins. Markið var álíka ósanngjarnt og það sem Fram skoraði gegn okkur á mánudaginn undir lok hálfleiksog Valsarar gátu vel við unað þegar flautað var til leikhlés.
Hafi einhver vonast eftir að annað Valslið kæmi til leiks í seinni hálfleik þá voru fá teign á lofti um slíkt. Áfram stjórnuðu Haukar lofthelginni og kom Arnar Gunnlaugsson þeim yfir að nýju á 57. mínútu. Jón Vilhelm missti boltann á kantinum og liðsfélagar hans gerðu lítið til að bjarga andliti hans en Haukar tættu í sig Valsmenn áður en Arnar skaut boltanum gegnum Sigurbjörn og framhjá Kjartani.
Valur farinn að elta á nýjan leik og fátt í kortunum sem benti til að þrjú stig féllu í skaut leigusalanna. Gunnlaugur skipti Viktori Unnari inn á fyrir Danni König og skömmu síðar fiskaði Ian Jeffs aukaspyrnu eftir snjalla hreyfingu hjá Viktori. Martin Pedersen var ekki langt frá því að skora úr spyrnunni en Sigbjörn Hreiðarsson þefaði upp frákastið og jafnaði leikinn á ný fyrir Val. Ósanngjarnt kannski frá sjónarhorni Hauka en Valsarar gerðu sér vonir um að þeirra menn myndu rífa sig upp fyrir lokakaflann.
Því var ekki að skipta og þegar um 10 mínútur voru eftir var Gjafavörudeild Vals mætt með pakkana. Stefán Eggertsson mætti með vítaspyrnu á silfurfati og kom það í hlut Arnars Gunnlaugssonar að taka spyrnuna. Arnari mistókst að landa boltanum í netið aldrei þessu vant og skaut framhjá en Kjartan reyndi að fá sinn hlut í sölubónus Stefáns og fór í vitlaust horn.
Á lokamínútunum var Kjartan aftur kominn í sölustörfin þegar hann og Greg Ross reyndu furðulegan samleik á miðjum vallarhelmingi Vals en Ross sá síðan þann vænstan kostinn að spyrna boltanum út af. Valsmenn gátu gengið af velli dauðfegnir með jafnteflið en Haukamenn eflaust svekktir að hafa ekki náð í sinn fyrsta sigur á Hlíðarenda.
Danni König hefur ekki verið í miklu uppáhaldi hjá Völsurum undanfarið en í kvöld má segja að steininn hafi tekið úr. Þegar Gunnlaugur Jónsson þjálfari skipti honum út af var Daninn ekki par sáttur, bölvaði hátt og hressilega, lét sig reyndar hafa það taka í höndina á Viktori Unnari sem kom inn á en síðan fengu fúkyrðin að ganga yfir varamannabekkinn. Ekki sást hvort hann hafi beint orðum sínum beint að þjálfaranum en í það minnsta reif hann sig úr Vals treyjunni og grýtti í átt að tréverkinu að því er virtist.
Það er eitt ef leikmenn Vals geta ekki staðið sig fyllilega vel inn á velli, klúðrað hverju dauðafærinu á fætur öðru leik eftir leik en hanga samt alltaf inn í liðinu. Það má fyrirgefa það.
Þetta var hins vegar furðulega mikil óvirðing af hálfu Danans en kannski er König kominn með leið á lífinu í íslenska boltanum og var einfaldlega að reyna að stimpla sig út úr Val. Varla getur Gunnlaugur Jónsson látið þetta óátalið þótt lítið hafi farið fyrir þessu í leikumfjöllun fjölmiðlanna.
Næsti leikur er við Fram á mánudaginn í bikarnum. Nánar að því síðar.
![]() Leiguliðarnir á Hlíðarenda komu og sýndu ábúendunum í Valsliðinu æfingar í knattraki og hvernig hægt er að láta boltann ganga manna á milli endrum og sinnum. Gjafavörudeildin í Valsliðinu stóð fyrir sínu og fengu Haukarnir tvo pakka upp í hendurnar. Þrátt fyrir önnur gylliboð létu Haukar þar við sitja enda talsvert eftir af leigusamningnum. 2-2 jafntefli og Valur fjarlægist toppbaráttuna þessa dagana með hverri umferð. Leikurinn hófst nokkuð rólega en ef eitthvað var þá virtust Haukamenn áhugasamari. Eftir um 25 mínútur tóku leigjendurnir af skarið þegar Valsvörnin var sundurspiluð í eitt af fjölmörgum skiptum í sumar. Hilmar Geir Eiðsson rak endahnútinn á fallega sókn Hauka og Valur kominn með mark á sig 17. deildarleikinn í röð. Menn í stúkunni eru hættir að kippa sér upp við ýmislegt en leiða má líkum að því að stór hluti af „mörkum sumarsins“ munu vera skoruð gegn Val þegar leiktímabilið verður gert upp.
Haukar réðu lögum og lofum í lofti, á láði sem og legi en rétt fyrir leikhlé tókst Ian Jeffs að jafna þvert á gang leiksins. Markið var álíka ósanngjarnt og það sem Fram skoraði gegn okkur á mánudaginn undir lok hálfleiks og Valsarar gátu vel við unað þegar flautað var til leikhlés.
Hafi einhver vonast eftir að annað Valslið kæmi til leiks í seinni hálfleik þá voru fá teign á lofti um slíkt. Áfram stjórnuðu Haukar lofthelginni og kom Arnar Gunnlaugsson þeim yfir að nýju á 57. mínútu. Jón Vilhelm missti boltann á kantinum og liðsfélagarnir gerðu lítið til að bjarga andliti hans en Haukar tættu í sig Valsmenn áður en Arnar skaut boltanum gegnum Sigurbjörn og framhjá Kjartani.
Valur farinn að elta á nýjan leik og fátt í kortunum sem benti til að þrjú stig myndu falla í skaut leigusalanna. Gunnlaugur skipti Viktori Unnari inn á fyrir Danni König og skömmu síðar fiskaði Ian Jeffs aukaspyrnu eftir snjalla hreyfingu hjá Viktori. Martin Pedersen var ekki langt frá því að skora úr spyrnunni en Sigbjörn Hreiðarsson þefaði upp frákastið og jafnaði leikinn á ný. Ósanngjarnt kannski frá sjónarhorni Hauka en Valsarar gerðu sér vonir um að þeirra menn myndu rífa sig upp fyrir lokakaflann.
Því var ekki að skipta og þegar um 10 mínútur voru eftir var Gjafavörudeild Vals komin með pakkana. Stefán Eggertsson gaf vítaspyrnu á silfurfati og kom það í hlut Arnars Gunnlaugssonar að fara á punktinn. Arnari mistókst að landa boltanum í netið aldrei þessu vant, skaut framhjá en Kjartan reyndi að fá sinn hlut í sölubónus Stefáns og fór í vitlaust horn.
Á lokamínútunum var Kjartan aftur kominn í sölustörfin þegar hann og Greg Ross reyndu furðulegan samleik á miðjum vallarhelmingi Vals en Ross sá síðan þann vænstan kostinn að spyrna boltanum út af. Skömmu síðar var flautað til leiksloka og gátu Valsmenn gengið af velli dauðfegnir með jafnteflið en Haukamenn eflaust svekktir að hafa ekki náð í sinn fyrsta sigur á Hlíðarenda. Danni König hefur ekki verið í miklu uppáhaldi hjá Völsurum undanfarið en í kvöld má segja að steininn hafi tekið úr. Þegar Gunnlaugur Jónsson þjálfari skipti honum út af var Daninn ekki par sáttur, bölvaði hátt og hressilega, lét sig reyndar hafa það taka í höndina á Viktori Unnari sem kom inn á en síðan fengu fúkyrðin að ganga yfir varamannabekkinn. Ekki sást hvort hann hafi beint orðum sínum beint að þjálfaranum en í það minnsta reif hann sig úr Vals treyjunni og grýtti í átt að tréverkinu að því er virtist.
![]() Það er eitt ef leikmenn Vals geta ekki staðið sig fyllilega vel inn á velli, klúðrað hverju dauðafærinu á fætur öðru leik eftir leik en hanga samt alltaf inn í liðinu. Það má fyrirgefa það.
Þetta var hins vegar furðulega mikil óvirðing af hálfu Danans en kannski er König kominn með leið á lífinu í íslenska boltanum og var einfaldlega að reyna að stimpla sig út úr Val. Varla getur Gunnlaugur Jónsson látið þetta óátalið þótt lítið hafi farið fyrir þessu í leikumfjöllun fjölmiðlanna.
Næsti leikur er við Fram á mánudaginn í bikarnum. Nánar að því síðar.
Besservisserar (8)
![]()
Gunni D
said:
|
|
... Finnst þessi umfjöllun gjörsamlega út í hött hérna og hvað þá Þessi flugmiði með nafni König á og ætla mætti að þetta sé eingöngu gert til að skapa ólgu. Vissulega voru viðbrögð hans ekki rétt en þetta en það er ekki eins og hann hafi verið þekktur fyrir einhver leiðindi innan Vals og oft hefur maður nú séð svona látalæti hjá leikmönnum á Íslandi án þess að menn vilji senda þá í burt. Svo virðist sem persónulegt álit höfundar skyggi á umfjöllunina en altént virðast sumir leikmenn liðsins enga krítík fá þrátt fyrir mikið andleysi. Ekki veit ég hvort það sé vegna þess að títtnefndur König sé útlendingur eða hvað en hann hefur að mínu mati langt frá því verið það sem er að í Valsliðinu. |
|
... Alveg sammála. Stuðningsmenn STYÐJA liðið sitt alltaf og þetta er til háborinnar skammar. Ekki einu sinni Kr-ingar myndu leggjast svona látt eins og þessi flugmiði er. |
|
... Fínn Pistill eins og allir hinir. Verst hvað sumir eru hörundssárir þegar það kemur að því að gagnrýna en athugasemda kerfið ætti að vera góður vettvangur til að vera ósammála en ekki fara að væla og koma með gamla að það megi aldrei gagnrýna Val... |
|
... Þetta snýst ekkert um að ég sé hörundsár eða fína pistla. Gagnrýnin hérna er þannig að hún er bara tómt niðurrif og til þess að skapa leiðindi. Ég vona bara að leikmenn séu ekki að skoða þessa síðu því svona eiðileggur móral á fljótum tíma. |
|
... Þessi pistill er gjörsamlega til skammar, maður fær það á tilfinninguna að höfundur sé einfaldlega bara komin með nóg af Val almennt. Þetta á ekkert skillt við gagnrýni og er í raun bara niðurrif af verstu gerð. Ég Hvet Tryggva Jónsson til að hleypa einhverjum öðrum að ritvélinni sem er tilbúinn að gefa Valsliðinu smá séns á uppbygginartímum. |
|
... Mér finnst menn skauta framhjá aðalmálinu í þessum pistli og það er framkoma Danni König! Þetta er ekki beint hegðun sem sæmir kóngafólki og sýnir gríðarlega vanvirðingu gagnvart félaginu! |
|
... Hefur áður verið auglýst hérna eftir góðum pennum en ekki verið mikil viðbrögð. Það sem verið er að segja hérna er að það eigi ekki að vera nein umfjöllun. Mér þykir umfjöllunin hérna á valsarar.is góð og óvægin. Svo eru eitthverjir greinilega sem þykir hún ekki góð og vilja frekar að umfjöllunin séi engin. |
|
... Fínn pistill eins og flestir sem Tryggvi hefur skrifað hér. Alls ekki hætta umfjöllun þó einhverjir séu ósáttir hér í commentakerfinu. Ég er reyndar ósammála gagnrýninni á König, enda var hann einn af fáum sem var að leggja sig fram þegar honum var skipt útaf. Að mörgu leyti hægt að líta jákvætt á viðbrögð hans, vill vinna og skora. Honum var heitt í hamsi og var ósáttur við að vera skipt útaf, bara eins og Rooney. Svo er gaman að lesa svona pistla sem eru ekki þurrir og uppfullir af klisjum, heldur líflegir og skemmtilegir. Og þegar menn tala um að leikmenn eigi ekki að lesa þessa síðu því það eyðileggi móralinn, þá er það rugl. Þetta er stuðningsmannasíða, skrifuð af þeim sem eru í stúkunni, sem hafa sínar skoðanir eins og allir aðrir. Ef Gulli væri að skrifa þessa pistla ættu þessi ummæli rétt sér...en þetta er nú bara Tryggvi Áfram Valur og valsarar.is |