|
Höfundur: Tryggvi Jónsson
|
|
Mánudagur, 21. júní 2010 11:50 |
|

Helsta aðdráttaraflið í miðbæ Garðabæjar
Valsarar héldu á gervigrasvöllinn í menningarsetrinu Garðbæ í gær, minnugir háðulegrar útreiðar sem liðið hlaut á sama velli fyrir ári síðan. Stjörnumenn hafa verið sleipir á heimavelli sínum og því ekki laust við að Valsmenn hafi nálgast hann með fullri aðgát. Liðin skiptu markaskorinu á milli sín og 1-1 jafntefli niðurstaða sem bæði lið geta unað sátt við en um leið svekkt sig á að stela ekki sigrinum á lokamínútunum.
Valsmenn byrjuðu leikinn af krafti eins og svo oft í sumar en líkt og í síðustu leikjum vantaði smiðshöggið hjá framherjum liðsins. Danni König var að koma sér í færi en fór illa með þau. Þarf piltur heldur betur að spýta í lófana til að heilla Valsara á nýjan leik en færanýtingin hans eftir Fylkis leikinn hefur verið skelfilega döpur.
Á 25 mínútu komst Stjarnan yfir eftir dapran varnarleik Valsliðsins. Haukur Páll sem var á gulu spjaldi hikaði við að fara í tæklingu og um leið var Martin Pedersen ekki klár á því að hlaupa í skarðið sem Haukur skildi eftir. Stjörnumenn náðu við þetta að rífa upp Vals vörnina og skora auðvelt mark en eitt af fáum ergilegum atriðum í fari Valsliðsins í sumar er hversu ódýr mörk við fáum oft á okkur.

Kiddi Lá aðstoðarþjálfari Stjörnunnar er Valsmönnum að góðu kunnur
Eftir að Valur hafði verið mun betra liðið á vellinum framan af leik voru menn komnir undir og það á plastteppinu sem Keflvíkingar fengu rassskellingu á á dögunum. Valsmenn voru engu að síður að spila prýðilega, náðu að loka vel á spil Stjörnumanna og skapa sér ágætis tækifæri. Lítill kvíðbogi var því í mönnum þegar blásið var til leikhlés þrátt fyrir 1-0 forystu Stjörnunnar.
Gunnlaugur skipti Rúnar Má inn á fyrir Hauk Pál í kaffipásunni en Haukur virtist kenna sér meins í nára. Vonandi ekki alvarleg meiðsli þar á ferð enda hefur Haukur lyft Valsliðinu á nýtt plan með óþreytandi vinnusemi sinni og hjálpað Sigurbirni og Ian Jeffs að einbeita sér að því sem þeir gera best. Rúnar Már er heldur enginn aukvissi og jafnaði Skagfirðingurinn ungi með laglegum skalla skömmu eftir að hann kom inn á. Staðan 1-1 og mátti heyra Valsara í stúkunni fyllast bjartsýni yfir að þrjú stig gætu jafnvel fallið okkar mönnum í skaut.
Sú vonarglæta reyndist þó tómt fals en bæði lið fóru sér engu óðslega það sem eftir lifði leiks. Stigasöfnun Garðbæinga gengur eitthvað hægar í ár en í fyrra og Valur virtist sáttur við að binda enda á eigin fimm leikja sigurgöngu með því að sættast á jafntefli á skeinuhættum útivelli.
Það ætlar að reynast Valsliðinu erfitt að halda búrinu hreinu þetta tímabilið. Eftir átta umferðir í deildinni og eina umferð í bikarkeppninni höfum við fengið mark á okkur í hverjum einasta leik. Eins er það áhyggjuefni hversu illa gengur að skora í leikjum sem við virðumst vera með stjórn á líkt og í kvöld og gegn Selfossi, Aftureldingu og ÍBV.
Danni König sem virkar með sprækustu mönnum deildarinnar virðist detta í kæruleysi á köflum og fer illa með mörg færi í hverjum leik. Gunnlaugur Jónsson mætti vel athuga að setja aukna pressu á König með því að gefa Viktori Unnari tækifæri en hann hefur mátt sitja þolinmóður á bekknum það sem af er móts.
Dómari leiksins var Valgeir Valgeirsson og hann gaf tóninn snemma leiks þegar Haukur Páll fékk gult spjald fyrir algjört smábrot. Valgeir fór algerlega út af laginu með þessu en eftir þetta heimtuðu leikmenn og áhorfendur spjöld á allt og ekkert. Endaði leikurinn með einum sjö áminningum þrátt fyrir að ekki hafi sést eitt einasta grófa brot í 90 mínútur og það með Tryggva Bjarnason á vellinum. Eins vildu áhorfendur beggja liða fá vítaspyrnur í leiknum en Valgeiri til hróss þá virtist hann taka réttar ákvarðanir í þeim tilfellum.
Áhorfendur voru um 700, stemmningin svona lala en Stjörnumenn hófu jafnan upp raust sína til að kæfa hvatningaróp Vals megin í stúkunni. Þeir tóku þó lag og lag líka sem sum voru ágæt en annars gekk þetta mest út á að berja í bassatrommur sem blessunarlega eru á undanhaldi á flestum völlum.
Næsti leikur Vals er í bikarkeppninni á miðvikudaginn gegn Víkingum í Víkinni. Víkinni sem er lengst inn í Fossvogsdal. Hvort einhver var að reyna að vera frumlegur með þeirri nafngift eða um þekkingarskort á grunnheitum í landafræði er að ræða skal ósagt látið. En nánar að þeim leik síðar.
 |
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 21. júní 2010 14:53 |