|
• Sigur á Selfossi Fótbolti er skrítinn leikur Tryggvi minn, hver veit nema a... |
| 22:14, 31.08.2010 |
| Ási |
|
• Sigur á Selfossi Tek alfarið undir athugasemd Kristins hér að ofan. Kláru... |
| 19:14, 31.08.2010 |
| OHG |
|
• Sigur á Selfossi Það getur allt gerst í þessum bransa. Fótbolti er skrí... |
| 17:58, 31.08.2010 |
| Tryggvi Jóns |
|
• Sigur á Selfossi Evrópusætið er mjög fjarlægur draumur. Mér reiknast a... |
| 17:20, 31.08.2010 |
| HB |
|
• Sigur á Selfossi Eftir viðburðaríka daga er ekki hægt annað en að hrós... |
| 15:45, 31.08.2010 |
| kristinn |
| Stórmeistara jafntefli |
| Höfundur: Tryggvi Jónsson | ||||||||||||||||||||||||||||||
| Mánudagur, 19. júlí 2010 10:02 | ||||||||||||||||||||||||||||||
|
![]() Leiðir Vals og FH skildu eftir 2007
Aðeins tvö lið hafa orðið Íslandsmeistarar á síðustu sex ár og mættust þau á Kaplakrikavelli á sunnudagskvöldið í bongó blíðu. Fyrir þremur árum veltu Valsmenn Hafnarfjarðarrisanum af stalli á sama velli og á síðasta ári fögnuðu FH-ingar titlinum í andlitið á andlausu liði Vals sem náði 8. sæti. Stórmeistara jafntefli var niðurstaðan í kvöld sem var sum part svekkjandi en eðlileg niðurstaða miðað við þróun leiksins. FH-ingar hafa haldið sínu striki síðustu árin og segja má að leiðir hafi skilist milli þeirra og Vals eftir leikinn fræga árið 2007. Valur hefur verið fastur í miðjumoðinu með miklum tilkostnaði en FH haldið sig við að hirða Íslandsmeistaratitilinn. Stærsti munurinn milli liðanna er líklega sá að FH mætir til leiks með sóknaráætlun í sína leiki en síðustu árin hefur Valur verið í meiri iðnaðarmanna bolta. Valsmenn byrjuðu vel líkt og þeir gerðu í mörgum leikjum framan af móti. Klúður König sóaði fyrsta færinu sínu snemma leiks en Haukur Páll fékk alla til að gleyma því skömmu síðar þegar hann skoraði laglegt mark eftir að hafa gabbað varnarmenn FH. Okkar menn voru með góða stjórn á leiknum og aldrei þessu vant gekk boltinn nokkuð vel á milli leikmanna. Klúður König komst síðan aftur í færi skömmu eftir mark Hauks en skaut boltanum í stöngina úr þröngri stöðu og vonuðust Valsarar til að nú væri klúður kvótinn kláraður hjá þeim danska. Því miður reyndist það tóm óskhyggja.
![]() König vantar mikið upp á til að fullkomna sinn leik
Eftir að hafa stjórnað drjúgum hluta fyrri hálfleiks tók liðið aðeins eins marks forskot með sér í búningsherbergið. FH-ingar skora jafnan nokkur mörk á sínum heimavelli og Valsmenn fá undantekningalaust á sig a.m.k. eitt mark í leik svo ljóst mátti vera að ekki myndi duga að hanga á 0-1 forystu. Byrjun seinni hálfeiks lofaði góðu og svo virtist sem Jón Vilhelm hefði komið Val í 0-2 en Magnús Þórisson sá eitthvað sem enginn annar tók eftir og gaf FH aukaspyrnu og hafði mark af Val. Vægast sagt fáránleg ákvörðun og magnað hvað við njótum sjaldan vafans í svona tilfellum. Valsmenn héldu áfram að vera með undirtökin og eftir um 60 mínútur var Heimi Guðjónssyni nóg boðið og gerði tvöfalda skiptingu á sínu liði. Skömmu síðar þurfti Sigurbjörn Hreiðarsson að fara af velli vegna meiðsla en hann hafði verið drjúgur fram að því. Þetta reyndist vatn á myllu FH-inga sem tóku að ýta Valsliðinu aftar á völlinn og eftir um 70 mínútna leik var komið að fasta liðnum hjá Valsliðinu. Torger Motland jafnaði þá leikinn en sá norski hefur ekki verið að gera miklar rósir til þessa. Var þetta 18 deildarleikurinn í röð sem Valur fær á sig mark, svo því sé haldið til haga. Jafnræði var með liðunum eftir markið en heimamenn eitthvað aðeins líklegri til að hirða þrjú stig. Undir lok leiksins fengu Valsmenn síðan aukaspyrnu rétt fyrir aftan miðju. Martin Petersen tók sér óratíma í að sparka boltanum og Magnús Þórisson blés leikinn af meðan boltinn sveif um loftið. Óþarfa tímasóun hjá Petersen þegar ljóst var að leiktíminn var að renna út og lét Arnar Sveinn hann heyra það óþvegið. ![]() Fótbolti.net talar um agavandamál hjá Dönum liðsins í viðtali við Gunnlaug Jónsson og eins voru nefndar kítingar milli Arnars Sveins og Pedersen að leik loknum. Þjálfarinn segir agamálin vera leyst, deilur milli leikmanna séu af hinu góðu og sýni að það sé skap í mönnum. Vonandi að svo sé því nóg er nú ruglið samt. Fyrir Íslandsmótið var gripið í frasahandbókina og talað um að liðið væri að taka uppbyggingartímabil en slíkt er talið óbrigðult ráð til að létta af kröfum á keppnisliðum. Að notast við handónýtan danskan framherja í hverri umferð er varla hluti af þessum uppbyggingar áformum og þegar agavandamál bætast í ofan á lag verður sífellt erfiðara að átta sig á eftir hvaða plani er verið að vinna. Líklegasta skýringin á veru König í byrjunarliðinu er að hann velur sig nánast sjálfur í liðið enda varla neinn annar framherji á boðstólum. Pedersen getur aftur á móti bætt fyrir eitt stykki fyllerí með þokkalegum framstöðum. Jafntefli í Kaplakrika eru alls ekki slæm úrslit en Valsarar eru orðnir frekar langeygir eftir sigri sem hefði vel getað dottið okkar megin. Sérstaklega þar sem FH-ingar virkuðu enn þotuþreyttir eftir sneypuför til Hvíta Rússlands og alls ekki tilbúnir í neinn hörku leik. Næsti leikur Vals er gegn ÍBV í Eyjum á sunnudag. Sjáum til hvort það verði komið nánar að því síðar.
Besservisserar (16)
![]()
Björgvin
said:
|
|
... Danni König er vissulega að klúðra færum með miklum bravúr, en ef við skoðum leikinn í gær með hlutleysisgleraugum þá var hann að búa þetta allt til sjálfur. Réttlætir ekki klúður, en það að hann var sívinnandi gerir það aðeins þolanlegra. Veit einhver hvaða agadæmi var í gangi þarna? |
|
... Komst ekki á leikinn en alveg þokkaleg úrslit svona fyrir fram. FH hefur oft unnið okkur nokkuð þægilega síðustu tímabil en eru heppnir í ár að hafa náð þessum stigum gegn Val. Mér sýnist við vera taka svipað tímabil og 2006 þegar það vantaði alltaf topp sóknarmann til að klára færin. Við erum bara búnir að tapa tvisvar en gera mörg jafntefli og það skilur okkur frá toppnum. Danni König er búinn klúðra miklu en hann er líka alltaf einn þarna frammi og fær litla hjálp en er samt alltaf nálægt þessu. Staðan er bara þannig að við höfum engan annan sóknarmann og verðum að ná meiru út úr honum. |
|
... Strákarnir glutruðu niður gullnu tækifæri til að vera með eða nálægt toppbaráttunni í gær. Það er eins og það sé að þvælast fyrir mönnum þetta tal um að vera í uppbyggingu í ár. Deildin er galopin en Valur virðist alltaf mæta til að spila upp á jafntefli. |
|
... En og einn hræðilegur pistillinn hér, neikvæðnin skín úr skrifum höfundar og það lítur út fyrir að að hér sé þetta akkurat það sem menn þrífast best í. Bara einblínt á það neikvæða hér og persónulegt einelti gegn vissum leikmönnum. Ég hvet nýja pistlahöfunda að gefa sig fram hið fyrsta. Þessi stuðningsmannasíða hér er gjörsamlega að missa mark og stendur engan vegin undir nafni sem Valsarar. |
|
... Síðan hefur oftar en einusinni auglýst eftir nýjum pennum með misjöfn sjónarmið og jafnvel breiðari áhugasvið á íþróttastarfi innan Vals, en enginn hefur gefið sig fram. Við skorum því aftur á pennabæra Valsara til þess að setja sig í samband við okkur; Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. / Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. |
|
... Svo ósammála þér Lárus, þessi síða hittir beint í mark í nánast hverjum pistli. Ég sé ekki betur en það sé allt í algjöru rugli hjá Val. Þessi Danni König getur nákvæmlega ekkert. Skorar ekkert og hreyfir sig lítið. Hendir peysunni í menn þegar honum er skipt út af og er núna búinn að vera á fylleríi fyrir leiki! Hvaða leikmaður kemst upp með svona og hvað er þjálfarinn að pæla? Er hægt að bera virðingu fyrir honum þegar hann lætur allt svona óátalið? Mér sýnist Gulli vera alveg týndur í þessu starfi og ekkert að ráða við hlutina. Þessi síða hefur verið dugleg að skoða hans störf með gagnrýnu auga og á að gera það áfram. |
|
... Bjarni annaðhvort hefur þú ekki hundsvit á knattspyrnu eða hefur ekki verið að mæta á Valsleiki. Danni hefur verið manna bestur í liðinu og kannski einn af fáum sem hafa sýnt effort í liðinu seinustu leiki. Það er engin að segja að hann sé að spila frábærlega en hann er á fullu allan leikinn og það að þú segir að hann hreyfir sig lítið segir bara hvað þú ert úti að aka með þessum pósti þínum. Valur er í fimmta sæti og ekki sæti ofar en menn bjuggust við, samt eru menn með endalausar dillur út í einstaka leikmenn og þjálfara hérna. Það er engin á móti gagnrýni og ég held að flestallir Valsarar séu tilbúnir að lesa hana. En neikvæðni í eina átt og hálfgert skítkast er bara ekki boðlegt, vonandi þurfum við ekki að horfa upp á slíkt aftur hérna á þessari síðu. |
|
... Svo ég svari þessu Lárus þá er ég nú bara svona venjlegur knattspyrnu áhugamaður og hef aldrei reynt að skipa mér í hópa sérfræðinga. Ég kíki á leiki af og til og missi af öðrum án þess að ég missi svefn yfir því. En það þarf ekki einu sinni hundsvit til að sjá að Danni König er takmarkaður leikmaður og hefur ekkert finishing touch. Það er til lítils að hafa framherja sem getur ekki skorað og svo fæ ég ekki séð að hann sé að hreyfa sig eitthvað meira en aðrir. Með þjálfarann þá skil ég ekki að hann lætur þessi augljósu agabrot óátalin og ég með mitt litla vit á knattspyrnu myndi halda að Gunnlaugur sé fljótur að missa virðingu annara leikmanna þegar hann lætur þessa dani komast upp með að brjóta agareglur og hefur þá í liði sama hvað þeir gera. |
|
... Alir leikmenn eru að einhverju leiti takmarkaðir, meira að segja Messi. Danni er kraftmikill leikmaður, pressar vel, er fljótur og fylgin sér. Hann er búin að skora fimm mörk í deildini og hefur verið að spila mjög vel. Tek fram að ég er búin að sjá alla leiki nema á móti Grindavík. Hvað varðar agamál sem hér eru nefn skal varast að alhæfa of mikið eins og hér er gert. Gulli sagði í viðtali að búið væri að taka á þvi sem kom upp og því ber að treysta. |
|
... Hér er allt við sama heygarðshornið. Ég var á þessum FH leik og fannst liðið bara mjög gott og skil hreinlega ekki þennan neikvæða pistil. Danirnir eru meðal okkar bestu leikmanna ef menn vilja losna við annan þeirra eða báða þá veit ég ekki alveg hvað á að taka við. Kannski líður mönnum best þannig að geta skrifað eitthvað nógu neikvætt um félagið sitt. |
|
... Miðað við hvað það er miklu kostað til í kringum liðið þá eru vonbriðgi að vera í 5. sæti.... |
|
... Ef ég man rétt hefur Valur ekki keypt einn einasta leimann fyrir þetta tímabil. Stefán, Rúnar, Haukur og Jón Vilhelm voru allir samningslausir. Ekki voru erlendu leikmennirnir keyptir heldur. Að sjáfsögðu eru allir leikmenn á samning og fá greidd einhver laun. Hvort það er lítið eða mikið veit ég ekki en alltaf gaman að hafa einn Besservisser sem telur sig vita það. |
|
... Hvenær eru menn keyptir í íslensku deildinni? Sárasjaldan myndi ég halda. Þegar talað er um dýr lið á Íslandi er átt við launakostnaðinn. Væntanlega er svo dýrara að spila á útlendingum en (uppöldum) heimamönnum. |
|
... Útlendingarnir eru búnir að vera frábær búbót í okkar leikmannahóp, þá sérstaklega þeir Dönsku. |
|
... Mauli minn prófaðu að gerast félagsmaður og mæta svo í kjölfarið á aðalfund. Þá geturðu orðið bessevisser líka Svo er nú bara nokkuð auðvelt að verða sér úti um upplýsingar hvað menn eru að þiggja ca. í laun.... |