Nýjustu athugasemdir

Sigur á Selfossi
Fótbolti er skrítinn leikur Tryggvi minn, hver veit nema a...
22:14, 31.08.2010
Ási

Sigur á Selfossi
Tek alfarið undir athugasemd Kristins hér að ofan. Kláru...
19:14, 31.08.2010
OHG

Sigur á Selfossi
Það getur allt gerst í þessum bransa. Fótbolti er skrí...
17:58, 31.08.2010
Tryggvi Jóns

Sigur á Selfossi
Evrópusætið er mjög fjarlægur draumur. Mér reiknast a...
17:20, 31.08.2010
HB

Sigur á Selfossi
Eftir viðburðaríka daga er ekki hægt annað en að hrós...
15:45, 31.08.2010
kristinn

Nafn:

Netfang:

Vesen í Víkinni
Höfundur: Tryggvi Jónsson   
Fimmtudagur, 24. júní 2010 10:45


graar
Eitt mesta "fashion faux pas" knattspyrnunnar átti sér stað fyrir tæpum 15 árum

Valur marði Víking í bikarkeppni KSÍ á miðvikudagskvöld eftir framlengdan leik en sigurinn hefði allt eins getað fallið heimamönnum í skaut. Úrslitin 1-3 gegn spræku liði sem má búast við í úrvalsdeild á næsta ári. 

Þegar fram líða stundir verður þessa leiks sjálfsagt minnst fyrir ljótasta keppnisbúing sem Valur hefur nokkur tímann skartað. Steypugrá peysa og stuttbuxur henta kannski Byko auglýsingunni betur en hinn hefðbundni blái varabúningar síðustu sjö ára en það er vonandi að Valsliðið þurfi ekki að notast við þetta tískuslys aftur. Fyrir utan hvað leikmenn geta átt erfitt með að sjá hvor aðra inn á vellinum í þessu litleysi. Stærri lið en Valur hafa brennt sig á því.

Danni König kom Val yfir undir lok fyrri hálfleiks en Víkingar jöfnuðu í miðjum seinni hálfleik þegar Kjartan Sturluson misreiknaði illilega fyrirgjöf og skildi búrið eftir galopið. Valsmenn fengu því á sig mark tíunda leikinn í röð í deild og bikar. Enn og aftur var um algjört gjafa mark að ræða. 

Miðað við hversu mikið er lagt upp úr sterkri heild í öftustu línu Vals þá er þessi tölfræði ekki til hrópa neitt húrra fyrir en hingað til hafa markaskorar liðsins yfirleitt náð að bæta upp fyrir mistök varnarmanna og markvarðar. Ef liðið á að ná langt í báðum keppnum þarf það að geta haldið hreinu í einhverjum leikjum, svo einfalt er það.

vals_grar

Valsmenn reyndu að endurtaka leikinn með Rúnar Má og Stefán Jóhann í hlutverkum Giggs og Beckham (Mynd fótbolti.net)

Eftir jöfnunarmark Víkinga má segja að hvorugt liðanna hafi þorað að taka neina verulega áhættu. Valsmenn höfðu kannski meiru að tapa miðað við allt og allt en að sama skapi vantaði örlítið meiri gæði í Víkingsliðið til að það næði að halda uppi verulegri pressu á lokamínútunum.

Framlengingin þýddi að skrifstofufólk og aðrir innipúkar fengu notið sólarinnar mun lengur en um leið gerði góða veðrið það að verkum að ákveðin deifð var yfir stúkunni. Fyrirfram hefði mátt búast við að 20 hörðustu gaurarnir í Fossvoginum hefðu verið búnir að sturta í sig nokkrum kippum og gert sitt til að vera með læti. Menn eru þó greinlega vel uppaldir í þessum borgarhluta og allt því með dannaðasta móti.

Svipað var upp á teningnum í fyrri hluta framlengingar og í venjulegum leiktíma. Fátt um opin færi og engu líkara en að heimamenn ætluðu sér að freista þess að þrauka fram að vítaspyrnukeppni. Valsmenn voru líklega ekki alveg jafn spenntir fyrir því en eftir um 5 mínútur af seinni hluta framlengingar fiskuðu þeir aukaspyrnu rétt utan vítateigs. 

Flestir bjuggust við að Baldur Ingimar myndi reyna að hamra knöttinn líkt og í Frostaskjóli á dögunum en þess í stað var það Jón Vilhelm sem tók spyrnuna. Boltinn sveif laglega yfir varnarvegginn og small í stönginni en þar var Viktor Unnar mættur fyrstur í frákastið eins og sönnum framherja sæmir og átti í minnstu vandræðum með að pota tuðrunni yfir línuna. Valur kominn í forystu og ljóst að Víkingar þyrftu að bíta í skjaldarrendur. 

helgi2007

Helgi Sigurðsson að koma Val í 0-2 gegn FH 2007 (Mynd fótbolti.net)

Helgi Sigurðsson var ekki langt frá því að jafna ör skömmu síðar þegar hann snéri af sér varnarmenn Vals en skot hans fór rétt yfir markið. Guðmundur Steinn gekk síðan endanlega frá leiknum þegar hann fékk laglega sendingu frá Jóni Vilhelm og skallaði boltann í markið úr miðjum vítateig. Niðurstaðan 1-3 í sigurleik sem Valsarar máttu hafa sig alla við að landa og mun vonandi ekki sitja í þeim í næsta deildarleik. 

Valsmenn voru í sínu hefðbundna klandri með lægra skrifaðra lið en Gunnlaugur leggur greinilega áherslu á að menn liggi aftarlega og bíði færis. Taktík sem er orðin kunnuleg á Hlíðarenda en virkar betur í ár heldur en í fyrra aðallega vegna þess að Gunnlaugur er með leikmenn sem hafa meiri sprengikraft til að sækja hratt.


Þessi aðferðarfræði er fyrirgefanleg þegar hún gengur eftir en óbærileg ef úrslit nást ekki. Að sama skapi má taka undir orð þjálfarans á dögunum að það er styrkleikamerki þegar lið ná að kreista út góða niðurstöðu þrátt fyrir að leika ekkert sérstaklega. 

Fyrir utan úrslitin var einna ánægjulegast að sjá unga leikmenn Vals fá tækifæri. Haukur Páll, Jón Vilhelm og Rúnar Már stjórnuðu miðjunni, Stefán Jóhann spilaði allan leikinn í bakverðinum, Þórir Guðjónsson var í byrjunarliðinu og þeir Guðmundur Steinn og Viktor Unnar komu inn á sem varamenn. Gulli er því að standa við stóru orðin frá í vetur um að yngja upp í liðinu. 

vikvollur
Víkingsvöllurinn er ekki svo slæmur

Vallarstæði Víkinga er ansi skemmtilegt og naut sín sérlega vel í blíðviðrinu í gærkvöldi. Grill fyrir krakkana, kaffi og snúðar í félagsheimilinu handa foreldrunum og pizzur og pilsner til að halda unglingunum heitum í Berserkjakjallaranum. Stúkan er passlega stór og völlurinn í fínu ásigkomulagi. Erlendur Eiríksson dæmdi og fórst verkefnið vel úr hendi. Gaman að því þegar ekkert er upp á dómarann að klaga. 

Næsti leikur Vals verður gegn Keflavík á sunnudaginn klukkan 16.00. Eins og alþjóð veit er sigurvegarinn Willum Þór Þórsson þjálfari á þeim bænum. Leikstíll hans liðs er nokkuð áþekkur leik Valsliðsins og því má allt eins búast við 90 mínútna störukeppni þegar þar að kemur. Nánar að því síðar.

Digg    Facebook   
Besservisserar (5)add comment

Grátt said:

...
Já hvað er málið með búningana?
Valur er Rauður, hvítur og blár. Grár? Það þarf mjög mjög gott hugmyndarflug að detta þessi litur í hug.

Við hefðum t.d. getað verið alveg hvítir eða bláir - það hefði verið mjög ólíkt víkingalitnum.
14:46 | 24 júní | 2010 | url

GP said:

...
Upp með jákvæðnina strákar, menn full negatívir hérna, Valsmenn hafa nú spilað glimrandi sóknarbolta í mörgum leikjum t.a.m gegn Fylki. Valsmenn eru með þannig lið að oft á tíðum yfirkeyra þeir liðin sem þeir mæta og það sérstaklega í fyrri hálfleik. Því verð ég að blása soldið þessa umfjöllun um leikstíl Vals, vissulega er þetta engin sambabolti en ég myndi segja að jafnvægið sé mjög gott í liðinu. Sá reyndar ekki leikinn í gær en fyrirfram þótti mér þetta vera mjög varasamur leikur gegn sterku 1 deildarliði á útivelli. Veit ekki alveg hvað menn eru að fara fram á í spilamennsku Valsliðsins ?, eru menn að vilja sama bolta 78 þegar Valur var með landsliðsmenn í hverri stöðu, þykir leitt að hryggja menn en ekkert lið á Íslandi spilar þannig eða mun spila þannig aftur.

En búningurinn var hræðilegur, því verður ekki neitað...
14:56 | 24 júní | 2010

HB said:

...
Nú er ljóst að við spilum alla okkar leiki sem eftir eru í bikarnum á Laugardalsvelli. Tökum þetta tvöfalt í ár ekki spurning. smilies/grin.gif
Varabúningurinn er mjög ljótur og passar alls ekki við Val.
16:08 | 25 júní | 2010

Kef said:

...
Hvernig er það, verður hægt að sjá England - Þýskaland hjá ykkur á morgun ef maður skellir sér á völlinn? Svekkjandi að þetta skuli lenda svona á sama tíma.
16:35 | 26 júní | 2010

Tryggvi Jóns said:

...
Það er stórt sjónvarp inn í Valsheimili sem er hægt að sjá leikinn og svo er Keilhöllin í Öskjuhlíð með sportbar.
12:26 | 27 júní | 2010 | url

Skráðu inn athugasemd
smaller | bigger

busy
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 24. júní 2010 17:56